SUNNAN VINDAR

South Winds Botanicals

Tenglar - Links

 

Dalai Lama

Heimsókn  Dalai Lama - Boðberi friðar og umburðarlyndis

Dalai Lama, andlegur og veraldlegur  leiðtogi Tíbeta og friðarverðlaunarhafi Nóbels,  heimsótti Ísland í byrjun júní. 2009 1. Hann tók m.a. þátt í friðarsamkomu í Hallgrímskirkju ásamt leiðtogum trúfélaga á Íslandi og var einnig þáttakandi í stuttu seminarium við  Háskóla Íslands.  Samkoma var fyrir fullu húsi stuðningsfólks í  Laugardalshöll þar sem Dalai Lama  flutt ávarp og ræddi við fólk.

Sjá nánar á www.dalailama.is

Hann flúði undan kínverskum stjórnvöldum fyrir hálfri öld og hefur allan þann tíma verið frelsistákn og óþreytandi
talsmaður þjóðar sinnar og hvergi hvikað frá stefnu sinni um friðasamlega lausn í málefnum Tíbets.
Dalai Lama, Tenzin Gyatso Kuger Yigtsang eins og hann heitir í Tíbet,  á marga stuðningsmenn og lærisveina um allan heim.

 www.dalailama.is

Hér er opinber heimasíða Dalai Lama og er þar mikinn fróðleik og visku að finna: http://www.dalailama.com/  

Aðrir tenglar
 
 

 

Latest News Teachings & Talks
Biography Messages / Speeches
Office Photo Gallery
FAQs Schedule
Contact Webcasts
Visit Chinese Site

Art of Living

Art of Living, AOL, er einstök öndunartækni og hugmyndafræði, sem Sri Sri Ravi Shankar  er höfundur að; http://srisri.org/               Upprunnið úr fræðum Yoga, Bhagavad Gita,  og öðrum indverskum Vedic fræðum og heimspeki.  http://www.srisriyoga.org/                       Sjá nánar um AOL http://www.artofliving.org/intl/   Í  Evrópu eru höfuðstöðvar AOL eða Asram í Þýskalandi http://artofliving-europe.org/  Upplýsingar um AOL á Íslandi eru hér; http://artofliving-europe.org/index.php?id=iceland

Amol Shende var leiðbeinandi okkar á námskeiði AOL í mars; http://www.myspace.com/amolshende

Sjá frá námskeiðinu á Facebook; Art of living á Íslandi. 

Næsta námskeið verður dagana 14 mai til og með 19 mai;

Yoga- Öndunartækni- Hugleiðsla

Allir vilja ná betri árangri, vera við góða heilsu, öðlast hugarró og vera hamingjusamir. En hvað kemur í veg fyrir þetta? STRESS!

Hugsanir okkar er á endalausu flakki milli fortíðar og framtíðar. Við höfum áhyggjur af einhverju sem sem koma skal eða erum að velta okkur uppúr einhverju sem er löngu liðið. Þetta framkallar streitu í líkamanum. Ef við erum í núinu og náum að kyrra hugan tekst okkur mun betur að takast á við lífið. Einbeiting eykst og lífsgæði aukast. Hljómar vel! En hvernig förum við að því að kyrra hugan?

Fæstir vita að líkaminn býr yfir einstöku “tæki” til að losna við stress. Öndunina. Já flest okkar nýta einungis lítinn hluta af öndunni og anda bara af gömlum vana og gera sér ekki grein fyrir mætti markvissrar öndunar)

Á námskeiðinu lærir þú sérstaka öndunartækni sem kallast Sudarshan Kriya, við hugleiðum og gerum léttar yoga æfingar.

Námskeiðið getur gagnast þér á eftirfarandi hátt:

•Þú lærir æfingar sem að stuðla að betra jafnvægi á milli líkama, sálar og huga.
•Þú lærir tækni til þess að losna við neikvæðar hugsanir og tilfinningar
•Minnkar stress og kvíða
•Bætir heilsu og eykur orku
•Bætir einbeitingu, sjálfsöruggi
•Þú öðlast betri sjálfsþekkinu

Næsta námskeið 2009:

14. -19.maí

Hvert námskeið skiptist í: fjögur kvöld frá kl: 19.00-22.00 og svo laugardag og sunnudag frá kl. 9.00-14.00.

Verð fyrir námskeið er kr. 14.000

Einnig er hægt að kíkka á kynningar viðtal við nokkrar stöllur úr ART OF LIVING sem tekið var á sjónvarpsstöðinni INNTV.is í þættinum Lífsblóminu með Steinunni Önnu.

http://www.inntv.is/Horfaáþætti/Vangaveltur/Lífsblómið25022009/tabid/739/Default.aspx

Innritun:
Lilja Steingrímsdóttir hjúkrunarfræðingur, sími: 692 8302 eða Berglind Þórðardóttir heilsunuddari sími: 895 0123
eða á info@artofliving.is

Bach Flower Centre

Góð hugmynd fyrir meðferðaraðila, homopata, grasafólk og aðra græðara er að gerast tengiliður við Bach Flower Centre í Englandi,

þá fæst aðgangur að mikillri miðlun upplýsinga um heilbrigðismál og nýjungar í lækningum græðara;

http://www.bachcentre.com/   

Supporting the Bach Centre

The Bach Centre exists to uphold the original work of Dr Edward Bach. We set standards in the preparation and use of remedies, and support the teaching of Dr Bach's original methods, based on his ideals of simplicity, purity and self-help.

You can help us by becoming a supporter of the Bach Centre. Your support will help us continue our work and give you privileged access to the Bach Centre and its team, including:

  • A special supporter's newsletter, emailed to you three times a year
  • Advance notification of courses and special events
  • Invitations to Bach Centre open days

It's easy to become a Bach Centre supporter. Just print out the registration form and fax it to +44 (0) 1491 825022. Alternatively send the completed form to:

Kristbjorg.is

Kristbjörg hefur unnið með blómadropa í hartnær 20 ár, byrjaði með Bach blómadropakerfið og fór strax að prófa sig áfram með íslenskar jurtir í stað þeirra erlendu. Síðan þróaðist þessi vinna þannig að í gegnum innsæið komu upplýsingarnar beint til hennar úti í náttúrunni og sambandið við jurtirnar varð sterkara með hverju árinu sem leið. Í dag eru um 104 jurtir búnar að gefa sig fram við hana og hafa eiginleikar og verkan þeirra þegar verið skrásett en ekki er þó búið að prófa allar tegundir endanlega.  Það var einkar henntugt að Kristbjörg bjó í Vallanesi þar sem hún stundaði lífræna ræktun á samt manni sínum, því þar var hún að vinna með að hlusta á náttúruna, skapa jafnvægi og læra að lifa í samræmi við náttúruöflin.

Árið 2000 lauk hún námi frá School of Natural Medecine í Iridologiu (Lithimnufræði), Naturopath (heilbrigðisfræði), og Master Herbalist (grasalækningum). Hefur hún unnið með jurtir síðan hún man eftir sér. Móðir hennar kenndi henni að búa til blóðbergste þegar hún var telpu hnokki.

Kristbjörg er einnig jógakennari og hefur hún kennt jóga í yfir 15 ár og hefur þá sérstaklega unnið með samband líkama, tilfinninga, huga og sálar í gegnum jógað eins og blómadropa. Hún lauk Kripalujóga kennaranámi frá Kripalu Center í bandaríkjunum, fór síðar í framhaldsnám til Indlands 1994 og lagði þar ástund á Raja jóga og Astanga jóga. Hún hefur sótt fjölmörg námskeið lengri og styttri víða í Bandaríkjunum og á Indlandi í jógískum fræðum.

 Árin 2000 - 2001 hlaut hún þjálfun á Indlandi hjá Dr. Paranjotyar Mahan (Gúrúji)  til að vígja fólk inn í Kundalini hugleiðslu og hefur sú  tækni opnað henni margar nýjar leiðir á innri sviðunum. Þar er unnið með frumorkuna í okkur sjálfum á þeim hraða sem hentar hverjum og einum. Kundaliniorkan er frumorka sem býr innra með hverju mannsbarni og í gegnum hugleiðsluna byrtir hún sig sem kraftmikil sköpunarorka.  Þetta er leið til frelsis og hugljómunar. Blómadropar vinna sérlega vel með henni þar sem bæði hugleiðslan og blómadropavinnan styðja við framþróun mannkyns.

Svana Ingvaldsdóttir NES-Professional

http://www.heilsulausn.com/ Svana Ingvaldsdóttir NES-Professional m.m. Svana útskrifaðist, sem homopati,  árið 2005 eftir 4ja ára nám við The Collage of Practical Homeopathy. Hún er félagi í Organon félagi hómópata og Bandalagi íslenskra græðara.  Stundað einnig  nám í Bowen tækni og er nemi í því fagi. Svana er frumkvöðull hér á landi  í s.k. NES greiningar tækni (Nutri Energetic Systemi) og  er að kynna þessa meðferð hér á Íslandi, Svana ákvað seinnipart síðasta árs að fara að vinna við sitt fag og var búin að skoða ýmisskonar tæki til þess að nýta í starfi, og varð Nutri Energetic Systemið NES-Professional fyrir valinu. Einnig er  fyrirtæki Svönu með innfluttning á nokkrum vörutegundum; m.a.  Kinohimitsu heilsupúðar sem hjálpa líkamanum að ná fram bestu stöðu góðrar heilsu, með því að styðja og efla blóðrásina, auka efnaskiptin, aukin svefngæði, og upptöku af skaðlegum líkamlegum eiturefnum. Einnig EPA-GLA og fitusýrur, sjá nánar á www.epa-gla.dk  og Multi-B alhliða vatnsuppleysanlegum B-vítamínum. Meiri upplýsingar er að finna á www.biosym.dk  Einnig má nefna hina einstöku kristallakjarna,  sem eru m.a. sérstaklega ætlaðir börnum sjá nánar www.indigoessneces.com    http://www.heilsulausn.com/

Kathrin Woodlyn Bateman.

Kathrin Woodlyn Bateman

Kathrin Woodlyn Bateman vinnur með plöntur og gerir einstaka blómadropa. Hún býr uppí fjalli, útí skógi, við Chester í MA/USA og  ræktar þar dásamlega fallegan náttúrugarð. Er "Íslandsvinur"  og átti íslenska hesta. Hún er einstakur ljósmyndari,  skoðið sýningu hennar á nærmyndum af blómum, efst á síðunni hennar New: Flower Show!   

(http://www.foxmountain.net/Flower_Show/monoslideshow.swf )  

Hún segir á síðu sinni;      http://www.foxmountain.net/  "So far I have chosen to keep this flower essence company quite small in order to prioritize the high quality that is important to me. This line of essences has a reputation of being extremely high quality and of very clear vibration as you can read in the testimonials. There seems to be a grounded quality of heart energy that is often felt as the sensation of being held in safe arms while one is healing with these essences.

I do not teach very often. I enjoy a quiet life and believe that the quality of the essences relies upon me making choices that keep me in a state of balance and personal integrity. I spend quite a lot of time in altered states that are a part of being the healer that I am. If I were to choose a teaching tour that would shift my options and I am concerned that it might change the essences so for now I am choosing to teach rarely.

The good thing for all of you is that I am more available to contact and ask questions of given that there is no large staff, secretaries, workers, etc. You are welcome to email or phone me. I will happily let you know if I have time to answer some questions or share some information. I am also available for private consultations by phone."

 

Nordica Spa

http://nordicaspa.is/  NordicaSpa er heilsulind 
á heimsmælikvarða sem veitir fyrsta flokks þjónustu í rólegu og þægilegu 
andrúmslofti og státar af glæsilegri hönnun og fallegu umhverfi. 
Við leggjum áherslu á bæði andlega og líkamlega vellíðan og er 
heilsulind Nordica Spa heimur út af fyrir sig. 
Þar geta gestir dekrað við sig og látið þreytu dagsins líða úr sér.  
Nordicaspa er í hinu glæsilega Nordica Hotel við Suðurlandsbraut. 
Gengið inn að sunnan verðu. 
Sunnan vindar hafa þróað nuddolíur og lotion, orku- og hreinsidrykki,  
auk sérstakrar leirmeðferðar í samstarfi við Nordicaspa.  
 

Opnunartími

 

Mánud.- fimmtud. 06:00 - 21:00
Föstudaga            06:00 - 20:00
Laugardaga          09:00 - 18:00
Sunnudaga           10:00 - 16:00

Maður Lifandi

 http://madurlifandi.is/ 
Maður lifandi er að byggja upp  heilsuvöruverslun, matstofu og 
fræðslumiðstöð þar sem boðið er upp á gott úrval af hollri matvöru 
og bætiefnum, tilbúnum heilsuréttum sem hægt er að borða 
á staðnum eða til að taka með í vinnuna eða heim. 
Svo og markvissa kynningar- og fræðslustarfsemi þar sem fjallað er 
um hollustu og betri líðan. 
Hugmyndafræðin byggir á breytingum sem orðið hafa í samfélaginu og tengjast 
aukinni áherslu á bætta heilsu, aukinni tíðni lífstílssjúkdóma og ofnæmis, 
lengri vinnutíma og álags og aukinni þörf fyrir að geta matreitt fljótt og 
auðveldlega heilsusamlegan mat fyrir alla fjölskylduna á sanngjörnu verði.  
Flestar okkar vörur fást  hjá Manni Lifandi !  
       
       Frá nýrri verslun Maður Lifandi í Kópavogi	              Jurga með vörukynningu á nýjum olíum og lotion

Bandalag íslenskra græðara

www.big.is

Bandalag íslenskra græðara - fyrir hvað stendur það?

Bandalag íslenskra græðara, eru regnhlífasamtök fagfélaga heildrænna
meðferðaraðila á Íslandi. Markmið Bandalagsins er að samræma
grunnmenntunarkröfur fagfélaganna, vinna að framgangi heildrænna
meðferðaforma og vera opinber málsvari þeirra.
Aðildarfélögin eru fagfélög sem gera menntunarlegar og faglegar
kröfur til félagsmanna sinna.

Hverjir eru í Bandalagi íslenskra græðara?
Bandalag íslenskra græðara var stofnað 30. nóvember árið 2000.
Hvatamaður að stofnun Bandalagsins og fyrsti formaður þess var Svava
Magnúsdóttir. Á stofnfundi voru sex aðildarfélög sem gengu í BÍG en
nú í dag eru þau orðin níu.

Aðildafélögin eru:
Aromatherapyfélag Íslands, CranioSacral félag Íslands, Cranio félag
höfuðbeina- og spjaldhryggsjafnara, Félag íslenskra heilsunuddara,
Félag lithimnufræðinga, Organon fagfélag hómópata, Samband svæða- og
viðbragðsfræðinga á Íslandi, Svæðameðferðarfélag Íslands og
Shiatsufélag Íslands.

Þeir sem eru fullgildir félagar í framangreindum fagfélögum eru
aðilar að BÍG. Sameiginlegt heiti félaganna í BÍG er græðari.
Félagsmenn sem skrá sig í skráningarkerfi græðara bera auðkennið
skráður græðari, auk fagheitis, samkvæmt lögum sem samþykkt voru á
Alþingi í maí 2005.

Hvert er markmiðið með lögum um græðara?
Markmið lagana er að stuðla að gæðum heilsutengdrar þjónustu græðara
og öryggi þeirra sem leita eftir slíkri þjónustu eða nýta sér hana.
Markmiði þessu skal m.a. náð með því að koma á fót frjálsu
skráningarkerfi fyrir græðara.
Með orðinu græðari í lögum þeim sem samþykkt voru á Alþingi er átt
við þá sem veita heilsutengda þjónustu utan hinnar almennu
heilbrigðisþjónustu.
Með heilsutengdri þjónustu græðara er átt við þjónustu sem einkum
tíðkast utan hinnar almennu heilbrigðisþjónustu og byggist fremur á
hefð og reynslu en gagnreyndum vísindalegum niðurstöðum. Slík
þjónusta felur í sér meðferð með það að markmiði að efla heilsu
fólks, lina þjáningar, draga úr óþægindum og stuðla að heilun.

Hægt er að nálgast upplýsingar um aðildafélög bandalagsins hér fyrir
neðan:
ATFÍ – Aromatherapyfélag Íslands
CSFÍ - CranioSacralfélag Íslands
Cranio - Félag höfuðbeina- og spjaldhryggjarjafnara
FÍHN - Félag íslenskra heilsunuddara
FL - Félag lithimnufræðinga
Organon - Fagfélag hómópata
SMFÍ - Svæðameðferðafélag Íslands
SSOVÍ - Samband svæða- og viðbragðsfræðinga á Íslandi
SFÍ - Shiatsufélag Íslands

BÍG er aðili að samnorrænum regnhlífasamtökum, NSK (Norræn
samstarfsnefnd um óhefðbundnar meðferðir), en það eru samtök
fagfélaga á norðurlöndum sem vinna að samræmingju menntunar og
viðurkenningar á heildrænum meðferðum.


Til þess að fræðast meir um ofangreind fagfélög er hægt að fara inn á www.big.is    

Heilsuhvoll

www.heilsuhvoll.is

Heilsumiðstöð, sem vert er að veita athygli;

Í ársbyrjun 2001 stofnuðu fjórir meðferðaraðilar: Dagný E. Einarsdóttir hómópati, Harpa Guðmundsdóttir Alexandertæknikennari, Jóna Ágústa Ragnheiðardóttir hómópati og Sigrún Sól Sólmundsdóttir svæða- og viðbragðsfræðingur, heilsumiðstöðina Heilsuhvol og hófu starfsemi í Flókagötu 65.
Fljótt bættust fleiri meðferðaraðilar í hópinn og þar kom að húsnæðið í Flókagötu var of lítið og flutti Heilsuhvoll, í apríl 2004, í Borgartún 33.
Þar hefur hópurinn enn stækkað og nú starfa 19 meðferðaraðilar á Heilsuhvoli.

Vefsíður um umhverfis og náttúruvernd

http://www.grasagudda.is/

Vefur Guðrúnar Tryggvadóttur lista- og náttúrukonu. Einn virkasti umhverfisfréttavefur á Íslandi í dag.

Alltaf nýr og ferskur !   

http://www.hugmyndaflug.is/ vefur Ómars Rafnarssonar Hugmyndaflug um náttúru, umhverfi og flug. 

http://www.mmedia.is/tun/ Vottunarstofan Tún, þrautseigju vefurinn um lífræna vottun á Íslandi.

http://www.natturuverndarsamtok.is/ Náttúruverndarsamtök sem þora, virtur og ferskur.

http://www.thjorsarverfridland.is/  Friðland í Þjórsárverum kemur.

http://www.nss.is/ Vefur Náttúruverndarsamtaka Suðurlands.

http://www.erfdabreytt.net/  Fræðslusvefur Neytendasamtakanna, Landverndar, Vottunarstofunnar Tun, NLFI og Matvís um erfðabreytt málefni. Hræðilegt mál.

Neytendur og umhverfi

www.ns.is   Neytendasamtökin

Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök og allir sem eru orðnir 16 ára geta orðið félagar og notið fullra félagslegra réttinda. Neytendasamtökin byggjast á einstaklingsbundinni aðild. Í ársbyrjun 2004 voru félagsmenn í Neytendasamtökunum 11.939 talsins.  Skrifstofa Neytendasamtakanna er í Reykjavík og þar starfa átta starfsmenn, einnig er skrifstofa á Akureyri með einum starfsmanni. Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök og allir sem eru orðnir 16 ára geta orðið félagar og notið fullra félagslegra réttinda. Neytendasamtökin byggjast á einstaklingsbundinni aðild. Í ársbyrjun 2004 voru félagsmenn í Neytendasamtökunum 11.939 talsins.  Skrifstofa Neytendasamtakanna er í Reykjavík og þar starfa átta starfsmenn, einnig er skrifstofa á Akureyri með einum starfsmanni.

***************************************************************************************************************

http://www.heilbrigdiseftirlitid.is/ 

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands er rekið sameiginlega af sveitarfélögunum á Suðurlandi og hefur starfað síðan 1. janúar 1984.
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands starfar skv. lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Svæði Heilbrigðiseftirlit Suðurlands nær yfir fyrrum Suðurlandskjördæmið þ.e. frá Sandskeiði í vestri til Skeiðarársands í austri, Vestmannaeyja í suðri og inn á miðhálendið. Helstu verkefni Heilbrigðiseftirlits Suðurlands eru starfsleyfisveitingar og eftirlit með ýmiss konar starfsemi t.d. í matvælaiðnaði, veitingarekstri og ferðaþjónustu, matvælaverslunum og annarri þjónustustarfsemi, auk þess sem aukin áhersla er nú lögð á eftirlit varðandi mengandi starfsemi og umhverfismál. Eftirlit og rannsóknir á neysluvatni og neysluvörum er einnig í höndum heilbrigðiseftirlitsins í samvinnu við viðkomandi fyrirtæki, sveitarfélög og Umhverfisstofnun ríkisins.

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands er umsagnaraðili vegna skipulagsmála, t.d. vegna sumarhúsabyggðar í dreifbýli. Neysluvatnsmál, fráveitur og sorphirða eru t.d. atriði sem heilbrigðiseftirlitið tekur til athugunar við slíkar umsagnir.

Matvælarannsóknir ýmiskonar eru framkvæmdar reglulega auk reglubundinna rannsókna má nefna salmonellu rannsóknir í kjúklingum og svínakjöti, listeriu rannsóknir í kjötvinnsluvörum, gerlarannsóknir á mjólkurís o.fl. 

***************************************************************************************************************

www.ust.is Umhverfisstofnun

Umhverfisstofnun, markmið og skipurit

Umhverfisstofnun starfar samkvæmt lögum nr. 90/2002 um Umhverfisstofnun. Hlutverk hennar er að stuðla að velferð almennings með því að beita sér fyrir heilnæmu umhverfi, öruggum neysluvörum og verndun og sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda.

Meginmarkmið

  • Heilnæmt umhverfi - að athafnir mannsins og þau efni sem hann notar og framleiðir spilli ekki að óþörfu auðlindum landsins og vistkerfi.
  • Sjálfbær þróun - að ekki sé gengið á rétt komandi kynslóða til lífsgæða.
  • Öryggi neytenda - að matvæli, aðrar neysluvörur og efni valdi ekki heilsutjóni, slysum á fólki eða mengun.

*************************************************************************************************************

http://www.umhverfisraduneyti.is/  Umhverfisráðuneytið

Umhverfisráðuneytið er yngsta ráðuneytið í Stjórnarráðinu, stofnað árið 1990, sbr. 1. grein laga nr. 3/1990, sem breyttu lögum nr. 73/1969 um Stjórnarráð Íslands. Þeir málaflokkar sem færðust til ráðuneytisins voru áður á ábyrgð sex ráðuneyta, þ.e. félagsmálaráðuneytis, heilbrigðis- og tryggingaráðuneytis, iðnaðarráðuneytis, landbúnaðarráðuneytis, menntamálaráðuneytis og samgönguráðuneytis. Þær stofnanir sem færðust undir umhverfisráðuneytið með stofnun þess voru

Ennfremur var kveðið á um að ráðuneytið færi með yfirstjórn Hollustuverndar ríkisins að því að varðar mengunarvarnir og yfirstjórn Siglingamálastofnunar ríkisins að því að varðar mengun sjávar.

Með lögum nr. 54/1994 var gerð sú breyting að umhverfisráðuneytið tók við yfirstjórn allra þeirra málaflokka sem lög um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit og Hollustuvernd ríkisins fjallar um. Þar á meðal eru mál er varða matvæli, eiturefni og hættuleg efni. Sérstök lög voru sett um matvæli sbr. lög um matvæli nr. 93/1995. Með ákvæðum laga nr. 70/1995 var mengunardeild Siglingamálastofnunar færð til Hollustuverndar og varð sérstakt svið, mengunarvarnir sjávar, innan stofnunarinnar. Með breytingum á lögum um snjóflóðavarnir árið 1995 var málaflokkurinn og Ofanflóðasjóður færður undir umhverfisráðuneytið og Veðurstofu Íslands. Með gildistöku nýrra náttúruverndarlaga árið 1997 var Náttúruverndarráð lagt niður í þáverandi mynd og stjórnsýsluhlutverk þess lagt undir nýja stofnun, Náttúruvernd ríkisins.

Með gildistöku byggingar- og skipulagslaga árið 1998 var skipulagsstjórn lögð niður og nafni Skipulags ríkisins breytt í Skipulagsstofnun. Samhliða þessu var Brunamálastofnun færð undir umhverfisráðuneytið. Stofnun Vilhjálms Stefánssonar var sett á fót á Akureyri árið 1997.

Umhverfisstofnun tók til starfa þann 1. janúar 2003 þegar hún tók við verkefnum Hollustuverndar ríkisins, Náttúruverndar ríkisins og Veiðistjóraembættis. Stofnunin starfar samkvæmt lögum nr. 90/2002 um Umhverfisstofnun. Hlutverk hennar er að stuðla að velferð almennings með því að beita sér fyrir heilnæmu umhverfi, öruggum neysluvörum og verndun og sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda.

Úrvinnslusjóður tók til starfa þann 1. janúar 2003 og starfar hann skv. lögum nr. 162/2002 um úrvinnslugjald með síðari breytingum. Úrvinnslusjóður sér um umsýslu úrvinnslugjalds og ráðstöfun þess. Hann skal með hagrænum hvötum koma upp skilvirku fyrirkomulagi á úrvinnslu úrgangs sem er tilkominn vegna vara sem falla undir lög um Úrvinnslusjóð.

Sjö náttúrustofur eru nú starfandi og tóku viðkomandi sveitarfélög við rekstri þeirra af ríkinu 1. janúar 2003: