SUNNAN VINDAR

South Winds Botanicals

Um Ristilhreinsun

 

Hvað segja þeir sem notað hafa  ristiltvennu ?

 

“Eftir ristilkúrinn líður mér svo vel og ég er full orku, það er eins og ég hafi farið í líffæra skrúbb og spúlun, þvílíkur munur ! Var á kúrnum í meir en mánuð og það leið ekki dagur án þess að eitthvað verulega einkennilegt var losað úr í salernið ! Mikið slím, kögglar  sem líktust soðinni lifur, langir samantvinnaðir drjólar eins og kaðlar og fremur ógeðfelld sníkjudýr eða ormar ! Alveg hræðilegt. En á eftir,  hvílík vellíðan !”

 

 “Við höfum sérstaka ástæðu til að segja frá okkar reynslu; Við prófuðum kúrinn með verulega góðum árangri. Við erum viss um, að ef móðir mín hefði komist tímanlega í slíka hreinsun, þá væri hún enn á lífi, en hún dó núna í júní 2003 eftir hræðilega pínu og veikindi sem öll áttu upptök sín í risitlvanda. Mælum sérstakleg með þessari einföldu meðferð.”

 

“Við erum búin að nota þessa ristilhvata meðferð núna í tæpan mánuð og ætlum svo sannarlega að halda áfram, ótímabundið; Allur hægðavandi og tregða horfin. Kallinn minn átti við vandamál að stríða vegna þess að hann var svo andfúll, en það er búið og bara ferskur ilmur af honum ! Það er líka ágætis tilfinning, að finna að við erum að losa okkur við meir en sextíu ára “afganga” sem sest hafa að í ristlinum. Kærar þakkir fyrir þessar ágætu jurtir og lífelfdu örverur. “

 

                                                                                  Hvernig er best að fara að við ristilhreinsun?

 

Hvenær er best að byrja ? Þú byrjar þegar þú ert klár, hvenær sem er. Kannski ágætt að byrja um helgi til að venjast kúrnum, laugardagsmorgunn er t.d. ágætur tími til að byrja. Ristilhvata er best að undirbúa með léttu matarræði, helst að byrja um helgi þegar hægt er að vera í sæmilegri slökun. 1-2 teskeiðar daglega á fastandi maga í  glas af vatni, betra að hrista fyrst t.d. í plast krukku. Drekka vatn á eftir. 3-5 daga eftir hvernig gengur. Allt er þetta einstaklingsbundið, sérstaklega hversu hratt hvatinn virkar; hjá sumum nánast strax hjá öðrum eftir 4-6 tíma. Ristilorku daglega á fastandi maga  í 1- 4 vikur á eftir.Sjá einnig  bækling um ristilheilsu hjá söluaðila. Áhersla er lögð á að þetta er allt einstaklingsbundið, bæði hvað virkar fljótt og eins hvernig þetta fer í fólk. Mikilvægt er jafnframt að huga að öllu matarræði og stunda hreyfingu, það eru aðalatriði. Þú hefur samband ef þú þarft frekari upplýsingar; sunnanvindar@simnet.is

 

Hvenær sér maður árangur ? Mörgum finnst þeir finni breytingu strax á fyrstu dögum, jafnvel aukna orku strax eftir fyrstu vikuna. Ef þú  vilt “sjá” árangurinn þá fylgstu með hægðum og því sem þú losar þig við. Margt kemur þar á óvart, jafnvel þó hafa ber í huga að 70% af örverum, aðskotaefnum og aðskotadýrum sést einungis í smásjá.

 

Er líklegt     maður leggi af við hreinsunina ? Já flestir léttast talsvert, oft 2 – 10 kg. Maginn minnkar, þ.e. hann verður minna þrútinn og flatari ! Mengandi efnin sem þú losar þig við eru nú horfin og það sést á útlitinu, jafnvel þarftu að fá þér nýtt belti, allavega að herða um 2-3 göt ! Strax og líkaminn er laus við aukaálgið nýtir líkaminn fæðuna betur og viðkomandi verður ekki eins sólginn í sætindi og fitu. Að sjálfsögðu verður fæðuval þitt líka  sjálkrafa gert með ábyrgari hætti fyrst þú ert búinn að fara í gegnum þetta hreinsunarátak.

 

Hvernig er er best að skipuleggja hreinsitímann ? Ef þú ert að vinna að ristilhreinsun í fyrsta skipti með jurtum, þá er ráðlegt að gefa sér góðan tíma með breyttu matarræði, helst í einn til tvo mánuði. Mundu að það hefur tekið áratugi hjá þér að safna mengandi og heilsutefjandi efnum í meltingarfærin og sérstaklega í ristilinn. Mikilvægt er að drekka mikið af vatni eða ávaxtasafa á hreinsitímanum, glas eftir hverja inntöku og 4-6 glös yfir daginn, það er mikilvægur þáttur af hreinsiferlinum. Ef þú ert á lyfjum er rétt að taka þau klukkustundu áður en jurtir eru teknar inn. Ef heilsan er ekki góð þá er alltaf ráðlegt að ráðfæra sig við lækni eða heilsufarsráðgjafann þinn. Þeir sema fara í slíka hreinsun árlega láta nægja mánuð, svo eru aðrir sem finnst fylgja það mikil vellíðan og bætt heilsa af þeim jurtum, sem notaðar eru, að þeir nota hluta af meðferðinni daglega, á það sérstaklega við blöndu #2 “Ristilorka”, en í henni eru bæði orkuaukandi jurtir sem innihalda mikið af  vítamínum og steinefnum,  síðast en ekki síst  inniheldur blandan einnig lífelfdar örverur, “probiotics”. 

 

Hvað er best að borða á hreinsitímanum ? Þó ekki þurfi að vera á sérstökum matarkúr samfara ristilhreinsun, þá er alltaf góð hugmynd að halda sig við hollustufæði;  Borðið lífrænt grænmeti og ávexti, kornmeti, hnetur og fræ er gott fæði á hreinsi  tímanum. Íslenskt sjávarmeti er alltaf hollt en reynið að borða ekki mikið af  neinu kjöti né unnum kjötvörum, notið sem minnst af mat úr dós, sem minnst af salti, sykri, mettuðum fitum, kaffi og sleppið helst bjór og sterkum vínum. Ef þú reykir, hættu strax. Heilbrigður ristill, jákvæð flóra og  bakteríur hans er grunnur að að sterku mótvægiskerfi líkamans, góðri heilsu og langlífi. Margar mjólkursýrubakteriur og aðrar jákvæðar bakteríur s.k.”Probiotics” eða lífelfdar örverur stuðla að hreinsun og heilbrigðu meltingarkerfi.

 

Hægt er að skipta  örverum (bakteriur, sveppir o.fl) í ristli í tvo hópa, þ.e. “góðar” og “slæmar”, þær “slæmu” framleiða margvísleg eitruð úrgangsefni, sem stuðla að langvarandi sjúkdómum og hrörnun líkamans. “Góðu”  örverurnar, þær sem oft eru kallaðar “probiotics” eða lífelfdar, hafa áhrif á grósku eða flóru jafnvægi í meltingarvegi, þær stöðva vöxt þeirra “slæmu”, t.d. candida sveppsins, stuðla að betri meltingu og úrvinnslu næringaefna, styrkja ónæmiskerfið og mótvægi gegn sýkingum.

 

Þeir sem eru með kröftuga flóru af jákvæðum  örverurum er jafnan heilsugóðir og hafa gott mótvægi gegn sjúkdómum. Miljarðar og trilljónir slíkra  örvera eru í heilbrigðum meltingarvegi og um 400 tegundir. Lactobacillus acidophilus er ein sú þekktast, fleiri stuðla að góðri heilsu, við nefnum hér t.d. Lactobacillus salivarius/casei/rhamnosus, Bifidobacterium bifidum/longum/lactis og Streptococcus thermophilus. Í heilbrigðum ristli eru þær “góðu” langtum fleiri en þær “slæmu”, þó getur ristillinn og meltingarvegurinn lifað með 15% “slæmra” bakteria ef m.k. 85% eru af lífeldu eða probiotic örverum eins og  Lactobacilli og  Bifidobacteria. Við nútíma matarræði, stress og sýklalyf er þessu oft öfugt farið.  Það er margt sem skemmir viðkvæma meltingar og ristilflóruna; klór og sodium efni geta verið í drykkjum og matvælum, kaffi og brennivín skaðar flóruna auk þess sem áður var nefnt; sýklalyf, stress og  nútíma lífsstíll getur allt haft slæm áhrif  þannig að þeim “illu” bakterium fjölgar og sjúkdómar herja á. Það er því ekki að ósekju máltækið   “Dauðinn byrjar í ristlinum. Hægt er að styrkja þær lífeldu með ýmsum trefjaríkum jurtum  og ræktuðum lífelfdum örverum eins og t.d. Lactobacilli og  Bifidobacteria. Í ristilþrennu okkar  eru bæði þessar trefjaríku jurtir auk hreinsandi jurta og sérunninna jurtaefna og leirtegunda, sem draga eiturefni úr ristilveggjum styrkja þá og stuðla að nýrri og betri orkuþáttum.

 

        Ristilhvati #1   Byrjið  á að nota #1 í 3-5 daga.     Ristilorka #2 Notið í  2-4 vikur.

 

Ert þú með sníkjudýr innvortis ? Það er því miður mikið algengara en margur heldur; skv. upplýsingum heilbrigðisdeildar Sameinuðu þjóðanna þá er ástandið í fáum orðum þannig;  “Um 1.5 miljarðar manna er sýktir af hringormum og er það þriðja algengasta sýking hjá mönnum í heiminum í dag. 1 miljarður manna er sýktur af svipuormum………. Meir 1,3 miljarður er sýktur krókormum,  svo fátt eitt sé nefnt af sýkinga pöddum sem menn bera með sér innvortis…..”  Vissulega tengjast flestar þessar sýkingar lélegum vatnsbólum, slæmu húsnæði og lélegu matarræði í þróunarlöndum en samt eru þær algengar á vesturlöndum og fara jafnvel vaxandi. Við prófanir hefur komið í ljós að fjöldi fólks er jákvæður t.d. með ýmsar nematóður; “Sýklafræðideild háskólans í Cambridge í Bretlandi komst að þeirri niðurstöðu að t.d. stöngulormur væri mjög algengur bæði í vestur Evrópu, sem og í Norður Ameríku,  skv.rannsókninni var talið að varlega áætlað að árlega sýktust af þessum ormi  yfir 200 milljón manna. Sýni tekin úr  börnum í BNA og Canada segja okkur að slíkar sýkingar geti verið 30% til 80%, gert er ráð fyrir sambærilegum tölum í Evrópu skv. þessari rannsókn í Cambridge.” Það er auðveldara en margur hyggur að komast í tæri við sníkjudýr, bakteríur og vírusa sem valda sjúkdómum; Mengað vatn, illa eldaður matur, óþvegnir ávextir og grænmeti, allt er þetta algengar orsakir.  Smit frá gæludýrum og sýktum einstaklingum eru líka smitleiðir. Ofnotkun sýklalyfja getur einnig valdið því að þarmaflóra kemst í lágmark og mótvægi líkamans minnkar við það og opnar leið fyrir ýmsu miður góðu. Ef eitthvað af ofnaskráðum einkennum hrjáir þig er líklegt að um innri eitrun sé að ræða og þá er rétt að leita ráða hjá lækni eða heilbrigðisráðgjafa þínum. Hver fruma líkamans verður fyrir áhrifum innri eitrunar og þegar eiturefni og úrgangsefni frá slíkum sýkingum hlaðast við og í taugakerfi líkamans veldur það pirringi og þunglyndi. Við verðum slöpp og kraftlaus þegar þessi efni hlaðast í æðar og við hjarta, við verðum uppþemd þegar mikið er af slíkum úrgangs- og eiturefnum í maga, þegar þessi efni safnast fyrir í lungum verðum við t.d. andfúl og fáum oftar en ella kvef og lungnasýkingar. Ef líkaminn reynir að losa eiturefni gegnum húðina veldur það kláða, blettum og húðin verður föl og hrukkótt. Eiturefni í kirtlum veldur síþreytu, kynorka dvínar og útlit virkar mun eldra en raunaldur segir til um.

 

Merki um innri eitrun:

Eftirfarandi einkenni geta verið til marks og aðvörunar um að einhverskonar eitrun, sníkjudýr, sveppir, slæmar örverur og sýkingar sé að valda sjálfeitrun í líffærum;

 

   Ofnæmi og fæðuóþol.
    Andfýla og verulega slæm lykt við vindlos og hægðir.

     Harðlífi eða  niðurgangur og óreglulegar hægðir.

     Tíðar vírussýkingar, stíflur í öndunarvegi og “alltaf kvef”.
     Þemba, vindur og tíðar truflanir í görnum.
     Ef þú ert oft með höfuðverk, án nokurra eðlilegra skýringa.

     Almenn vanlíðan og verkir sem fara úr einum stað í annan.

     Óþol við fitu í fæðu

     Lítil orka.
     Verkur  í neðra baki.
     Lítil mótstaða gegn sýkingum.
     Þörf á löngum svefntíma.
     Verkur í lifur eða gallblöðru.

              Fyrirtíðaspenn (PMS), sárindi í brjósti, ígerð í vaginu. 

              Vandamál í húð, kláði, kýli og sár.

 

Ristilhreinsun; Jurtatvenna sem hreinsar og styrkir meltingarveg og ristil. 

             Helstu kostir við árangursríka ristilhreinsun;

        Fyrirbyggjandi sjúkdómavörn.

         Bætt líðan -….. og betra útlit.

        Stórbætt melting.     

         Auðveldara að halda kjörþyngd.

         Meiri orka….. og betri kraftur.

        Minnkar lystarþörf  eftir óhollustufæði.

        Minni líkur á ofnæmi.

        Hægir á öldrunareinkennum.

        Skarpari hugsun – Betra minni.

 

Almennt má segja að heilsufar og almenn líðan stór batni þegar  fólk hugar vel að meltingarvegi og hreinsun þeirra mikilvægu líffæra sem vinna næringu úr fæðunni. Alltaf er best að byrja alla slíka hreinsun með ristilmeðferð,  sem hver og einn getur stjórnað sjálfur og er ekki of mikið álag á líffærin. Eitt af hlutverkum ristilsins er að þétta fæðuúrgang, vinna úr vökvum og taka við t.d. B vítamínum, sem framleidd eru í fæðuvegi og þörmum. En afeitrun og hreinsun líffæra á ekki að einskorðast við ristilinn. Jafn mikilvægt er að vinna að hreinsun nýrna, lifur og æða, já í raun allar frumur líkamans. Slíka hreinsun er hægt að framkvæma með réttu mataræði og góðum lífsstíl, föstu og jurtablöndum, sem hafa verið gerðar fyrir einstök líffæri og í flestum tilvikum er mjög góða reynsla af slíkum samelfdum jurtablöndum og oftar en ekki vísindalegar rannsóknir að baki.  En byrjið samt alltaf á slíkri hreinsun með því að hreinsa ristilinn fyrst, því ef það líffæri er ekki sæmilega hreinsað getur það valdið innri mengun annarra líffæra, því eins og máltækið segir; “Dauðinn byrjar í ristlinum”. Gættu því að ristilheilsu þinni, það getur skipt sköpum og verið lykilinn að varanlegri og góðri heilsu.  Jurtatvenna okkar er unnin úr lífrænt rætuðum  jurtum og öðrum náttúrulegum hráefnum;

 

1.       Ristilhvati; Hreinsar og styrkir meltingarveg og ristil.

2.       Ristilorka; Viðheldur bættri ristilheilsu og gefur nýja kröftuga orku.

 

Meiri orka – Minna stress – Jafnvægi huga og líkama....

Skortur á orku og slen er ein algengasta sjúkdómskvörtun í dag. Slík síþreyta getur orsakast af margbreytilegum þáttum, en oft er orsaka að leita til ástands í líkamanum, sem stafar af einhverskonar eitrun. Þrátt fyrir að þú borðir sæmilega hollan mat þá geta óholl efni bæði frá umhverfinu og úr fæðunni hlaðist upp í líffærum og hindrað rétta nýtingu nauðsynlegra næringarefna. Þessi eiturefni, “dauð” og illa melt fæðuefni valda lélegri meltingu, harðlífi, stíflum, ristilhleðslu, fitu- og uppþembu, lélegri orku og sleni. Þessi algengu einkenni eru mikið meira en óþægindi, þau geta valdið langvarandi heilsubresti, sjúkdómum og dauða

 

 

Flestir, sem hafa borðað að staðaldri nútímafæðu og skyndibitamat og eru að nálgast miðjan aldur, eru mjög líklega með m.k. 3-5 aukakíló af  hörðu “jukki”,  sem hefur sest að  í ristlinum.  Ef tekin eru dæmi af gömlum “félögum”, þá er sagt  að við krufningu leikarans ástsæla, John Wayne, hafi komið í ljós 20 kíló af  þétthörðum úrgangsefnum í ristilvegi. Fylgir  sögunni að við krufningu söngvarans ágæta, Elvis Presley, hafi sambærilegt  magn af eitruðu rusli í ristli verið um 30 kíló.    Í  raun dó Elvis  úr harðlífi,  sem leiddi til hjartastopps