
Jurta- og kjarnoliur fyrir nudd , olíur , krem....
Hér á eftir er kynning á helstu jurta olíum og öðrum hráefnum Sunnan Vinda, bæði sem við notum í vörur okkar og eins þær sem eru til sölu. Við notum einungis náttúrulega hráefni af bestu gæðum, vottuð lífræn ef þau eru fáanleg. Við notum engin kemisk efni eða liti, lögð er áhersla á umhverfis vænleika bæði hráefna og við lögun á vöru; Öll háefni okkar og vörur taka því m.a mið af eftirfarandi: Engar prófanir á dýrum, Umhverfisvernd, Jöfn kjör (Fair Trade) fyrir alla, Engin Efnailmur, Lauryl eða Sulföt, Engin Paraben, Ekkert Sodium. Olíublöndur okkar, krem og lotion hafa margvíslega notkunar möguleika bæði fyrir slökun með nuddi eða sem snyrti- og heilsuvörur. Við hvetjum þig til að prófa og njóta góðrar vöru úr náttúrunni!
1. Jurtaolíur
Aprikósu olía er kald pressuð úr fræjum/steinum aprikósu ávaxtarins. Hefur svipaða eiginleika og möndluolía en er léttari og gengur fyr inn í húðina. Mjög góð andlitsolía og rakagefandi fyrir hársvörð. Einnig góð líkamsolía þar sem hún skilur ekki eftir olíuslikju á húðinni eftir meðferð. Aprikósu olían hefur mikið af A vitaminum og hátt steinefnahlutfall og um 34% Linoleic sýru, einnig er hæsta þekkta hlutfall af nitrilosidum (sem er B-17 vitamin eða laetrile) í plöntuheiminum. Hentar öllum húðgerðum, sérstaklega viðkvæmri og eldri húð, sem er rakaskert og viðkvæm.. Góð gegn ótímabærum öldrunarbreytingum. Notuð á viðkvæma og þurra húð og við húðbólgum. Mjög góð andlitsolía og rakagefandi fyrir hársvörð. Einnig góð líkamsolía þar sem hún skilur ekki eftir olíuslikju á húðinni eftir meðferð. Fæst bæði úr hefðbundinni ræktun og lífrænt vottuð.
Efnaþættir
Þessi olía er unnin úr Avocado ávextinum, hún er með örlitlum grænum blæ, silkimjúk viðkomu, þykk og rík af bætandi efnaþáttum fyrir húðina. Inniheldur mikið af vítamínum (A, B og E) protinum, lecithin (phospholipid), fitusýrur og andoxunarefni og er mjög nærandi. Hefur eiginleika til að fara í efri húðlögin og er því mjög rakagefandi og mýkjandi. Avocado bætir rakaþætti í collageni húðarinnar og gefur húðinni þannig yngra útlit.
Efnaþættir.
Hveitikjarnaolía / Triticum vulgare / Wheatgerm
Hveitikjarnaolían er þykk olía með miklu innihaldi af protínum, steinefnum og A, B, C, D og E vitamínum. Mjög nærandi olía og styrkir bæði húð og háræðar auk þess að stuðla að endurnýjun húðfruma. Hveitikjarna olía er oft notuð þegar unnið er að mýkingu og yngingu húðar. Hún eflir endurnýjun húðarinnar og minnkar öramyndun og húðslit. Vinnur gegn ótímabærri öldrun húðar og er góð við exemi, psoriasis, fyrir þurra og sprungna húð og brunasár. Minnkar bauga undir augum og er góð andlitsolía þegar húð er þur. Góð olía eftir sólbað. Allir þessir eiginleikar gera hana að alhliða húð “elixir”, jafnvel í mjög litlu magni. Hentar þó ekki þeim sem hafa ofnæmi fyrir hveiti. Olían er þung og lyktsterk og því aðeins notuð 5-10% í blöndur. Eykur geymsluþol verulega í olíu- og smyrslablöndum. Fæst bæði úr hefðbundinni ræktun og lífrænt vottuð.
Efnaþættir:
Macadamia hneta / Macadamia integrifolia / Macadamia nut
Þessi silki fína olía er hefðbundin Hawaii olía og kemur frá vinnslu Macadamia hnetunnar, ættuð upprunalega frá Ástralíu. Þetta er tær og ilmlaus olía og er lík í efnasamsetningu og húðolía eða sebum líkamans. Rík af einómettuðum fitusýrum, auk oleic og palmitoleic sýrum. Palmitoleic sýran er nauðsynleg fyrir frumumyndun, sérstaklega til að viðhalda raka og nýliðun húðfruma. Þar sem palmitoleic sýrumyndun minnkar með aldrinum er Macadamia olían góð fyrir þura húð og seinkar öldrun húðarinnar. Þessi létta og meðfærilega olía er mjög góður grunnur í andlits-, líkams- og hár snyrtivörur og olíublöndur. Fæst bæði úr hefðbundinni ræktun og lífrænt vottuð.
Efnaþættir:
Möndluolíu er pressuð úr fræjum/steinum möndlutrésins. Ljós gulleit, létt, mild og fitumikil olía, sem rennur vel, gengur fljótt inní húðina og gefur gott varnarlag í lengri tíma. Möndluolía er góð fyrir allar húðgerðir, sérstaklega þurra húð og gegn kláða eða húðþrota ertingu, eymslum í húð, þurrki, bólgum, háræðasliti og góð á brunasá. Veitir góða rakagjöf og verndar, mýkir og nærir húðina. Mjög góð fyrir hendur og neglur. Möndluolía mýkir og nærir húðina, gefur góða rakagjöf, vernd og næringu. Góð í blöndur fyrir börn. Getur komið í staðinn fyrir lotion og kjarnolíur blandast vel í möndluolíu. Möndluolía er rík af protinum, steinefnum og fjolómettuðum fitusýrum auk náttúrulegra vitamína; A, B1, B2, B6 and E. Í möndluolíu er allt að 28% Linoleic sýra (Omega 6). Rannsóknir sýna að þetta háa hlutfall Linoleic skýri eiginleika möndluolíu til að hægja á vökvatapi frá ytri húðlögum (TEWL - Trans-epidermal vökvatap), sem veldur betri rakadreifingu í húðinni og seinkar þannig öldrunarþáttum í húð, viðheldur húð heilsu og fækkar hrukkum. Fæst bæði úr hefðbundinni ræktun og lífrænt vottuð.
Efnaþættir
· Palmitic Acid 6-8%
· Oleic Acid 64-82%
· Linoleic Acid 8-28%
Olífuolía / Olea europaea / Olive oil
Olífuolían er þekkt í upprunalöndunum við Miðjarðarhafið, sem “heilunar og laglífis olían”, bæði til nota innvortis og útvortis. Mjög góð á viðkvæma húð, í hárvörur eða sem íblöndun í aðrar snyrtivörur. Fæst bæði úr hefðbundinni ræktun og lífrænt vottuð.
Efnaþættir:
Oleic- 76.7%
Palmitic- 10.5%
Linoleic- 6.6%
Linolenic- 0.7%
Létt en efnarík olía, sem hentar öllum húðgerðum. Inniheldur E-vítamín, steinefni, prótein og lesitín. Notuð á exem og psoriasis þar sem hún nærir og mýkir. Vinnur gegn ótímabærri öldrun húðar og ver hana fyrir UV geislum sólar. Inniheldur náttúrulegu andoxunarefnin sesamoline, sesamine and sesamol og geymist því vel. Mikið notuð við Ayurvedic lækningar og nudd meðferðir, sérstaklega við Vata jafnvægisjöfnun, er sögð hafa góða heilunar eiginleika og yngir húðina er m.a. einnig sögð heilög olía. Sesame olían heitir "Nuvvula Noona” á Telugu máli á Indlandi. Fæst bæði úr hefðbundinni ræktun og lífrænt vottuð.
Sólblómaolía er létt og þægileg olía með mildum ilm, ekki fitumikil og satinmjúk. Mikið af A, B, D og E, vitamínum. Fæst bæði úr hefðbundinni ræktun og lífrænt vottuð.
Efnaþættir:
· Oleic Acid 70-87%
· Linoleic Acid 3-12%
· Stearic Acid 3-5%
· Palmitic Acid 3-5%
· Linolenic Acid <1%
Þrúgukjarnaolía / Vitus viniferi / Grapeseed Oil:
Þrúgu kjarnaolía er unnin úr fæjum vínberja eftir að búið er að taka vínsafann úr og skilja annað frá. Oftast unnið með hitun og efnaþáttum. Mikið magn fræja/steina þarf í hvern líter og er þetta oftast aukaaðfurð hefðbundinnar vínframleiðslu. Sjaldan til lífrænt vottað. Þrúgukjarnaolía hefur fallegan grænleitan blæ. Rík af vitamínum og steinefnum, inniheldur oftast mikið magn Linoleic Acid ( Omega 6 fitusýra) og einnig mikið magn andoxunarefna. Sérstaklega fínleg og létt olía, lyktarlaus, rennur vel og dregst fljótt inn í húðina við nuddmeðferð. Góð fyrir allar húðgerðir.
Efnaþættir:
· Linoleic Acid 69-78%
· Oleic Acid 15-20%
· Palmitic Acid 5.9-7.5%
· Stearic Acid 2.4-4%
· Alpha-linolenic Acid 0.3-1%
· Palmitoleic Acid 0.5-0.7%
2. Vax, “Butters”, aðrir jurtavökvar, o.fl.
Jojoba / Simmondsia chinensis / Simmondsia californica
Þessi “olía” er í raun vaxkendur “ester” unnin úr fitumiklum fræjum Jojoba runnans, sem er eyðimerkurplanta og vex í suðvestur Bandaríkjunum, Mexikó og Argentínu. Frumbyggjar notuðu þessa jurt bæði til heilunar og að einhverju leyti sem fæðu. Jurtin er ekki uppgötvuð, sem snyrtivöru jurt fyr en um 1970. Jojoba inniheldur prótein, vítamín og steinefni. Sérstaða Jojoba er að efni í henni eru lík og í húðfitu (sebum) og kemst því mjög auðveldlega í gegnum húðina til að næra hana. Jojoba hentar öllum húðgerðum, er mýkjandi og rakagefandi og því góð fyrir þurra húð. Hún er bólgueyðandi og þess vegna góð á exem. Jojoba sléttir úr húð og eykur teygjanleika hennar og er sérstaklega góð fyrir neglur og naglabönd. Jojoba vaxið smitast ekki og virkar ekki fitukennt á húðinn. Vegna sebum innihaldsins viðist það gera sama við húðina og í móður plöntunni sjálfri; þekur fyrir rakann í húðinni þegar mjög heitt er til að koma í veg fyrir vökvatap og að sama skapi verndar húðina einng fyrir kulda og trekki m.a. með að stýra jafnvægi sebum flæðis húðarinnar. Jojoba styður einnig jafnvægi sýrustigs húðarinnar á sinn náttúrulega hátt og ver húðina þannig fyrir slæmum bacterium. Jojoba er grennandi fyrir þá sem hreyfa sig reglulega. Jojoba er sérlega geymsluþolin og þránar ekki, jojoba getur því aukið geymsluþol í olíu- og snyrtivörublöndum. Jojoba er eitt besta náttúrulega snyrtivöruefni sem völ er á. Jojoba fræ innihalda alpha, delta og gamma tocopherols, sem öll eru hluti af E vitamíni. Esterum, efnaþátturinn er með þungum molekulum, með nær eingöngu beinlínu sýrum og alcoholum. Sýrurnar eru blanda af eicosanoic og docosanoic sýrum, með litlu af palmitoleic og oleic. Alcoholin eru t.d. eicosanol og docosanol, með minna af hexacosanol og létt molekola alcohol. Rannsóknir sýna að einnig eru í Jojoba, simmondsin og monoglucoside, sem finnast ekki í neinni annarri plöntu. Nýtanlegt vökvainnihald fræja er um 50% til 54% Fæst bæði úr hefðbundinni ræktun og lífrænt vottuð.
Efnaþættir:
· Eicosenoic Acid 66-71%
· Docosenoic Acid 14-20%
· Oleic Acid 10-13%
Kókos”smjör” / Cocos nucifera / Coconut oil / Coconut butter
Kókoshnetuolía er unnin þurkuðum kókostrefjum (copra) úr kókoshnetunni, afurðin er í hvít og í föstu formi en bráðnar og verður litlaus vökvi við 24-25°C., kölluð kókossmjör í föstu formi en kókosolía þegar hún bráðnar í vökva. Olían er mikið notuð í nudd- og snyrtivörur, mjög rakagefandi sé hún notuð í hófi, ef of mikið magn notað getur hún þurrkað húðina. Á Indlandi og
Efnaþættir:
Kari-té / Butyrospermum parkii / Vitellaria paradoxa / Karite butter (Shea butter)
Kari-té eða Shea Butter, er unnið (kaldpressað) úr fræjum Kari- té (kölluð smjör-fræ) , sem vaxa á Shea Nut trénu (butyrospermum parkii), sem vex í vestur héruðum Afríku. Í ávöxtum trésins er fræ hneta sem unnin hefur verið í aldir bæði til fæðu og sem rakagefandi til að vernda húðina gegn sterkri sól, vindi, hita og sjó. Kar-ité eða Shea Butter er gott að nota við allt nudd; það rennur mjög vel án mótstöðu, en samt hægt að halda góðu “gripi” við nuddið og þannig ná bæði mjög mjúku og bætandi nuddi allt til innri vöðva. Kari-té hentar mjög vel fyrir íblöndun með kjarnaolíum, í grunnolíur, lotion og krem, enda er það oft eitt af grunnefnum, t.d. í mörgum þekktum frönskum snyrtivörum. Kari-té eykur myndun collagens og getur þannig minnkað hrukkur, grætt ör og brunasár. Gott nuddefni í hársvörð og eykur þar blóðflæði, gagnast vel við exemi, sótthreinsar og talið vera gott við liðagigt m.a. vegna innihalds stigmasterol, sem er slakanddi efni fyrir liði. Er gott við sólbruna (SPF-6) en Kari-té inniheldur talsvert magn af cinnamicsýru, sem hindrar sóbruna. Fæst bæði úr hefðbundinni ræktun og lífrænt vottuð.
Efnaþættir:
Mango / Mangifera indica
Mango er tiltöluleg ný jurt til nota í snyrti- og nuddvörur. Unnið (kaldpressað) úr Mango fræhnetum. Mango er mjög rakagefandi, t.d. góð uppistaða í lotion, allar húðvörur og sem sólarvörn. Mango hefur kröftuga græði eiginleika og er því mikið notað til að græða sprungnar varir og húð, auk þessað vera góð til að græða önnur sár. Inniheldur glyceríð úr oleic stearicsýrum. Snyrti- og húðfræðingar mæla oft með Mango fyrir hrukkuminnkandi meðferð, m.a.vegna þess að þeir, sem hafa ntað mangoblöndur hafa tekið eftir minnkandi hrukkum og yngingu húðar eftir 4-6 vikna notkun. Mango fæst bæði úr hefðbundinni ræktun og lífrænt vottuð.
Efnaþættir:
Aloe Vera / Aloe barbadensis
Aloe Vera er eyðumerkurplanta, sem vex og er ræktuð víða um heim, helstu ræktunarsvæðin eru í Bandaríkjunum og á Kanríeyjum. Aloe Vera er litlaus vökvi, unnin úr innra byrði blaða plöntunnar. Vökvinn sem unnin er úr plöntunni er ekki olía heldur vatnskennd afurð með vott af kjarnolíu (Essential oil). Aloe Vera er þekkt fyrir heilunarkraft og er notað í margvísleg krem og lotion, auk þess að vera vinsælt efni í fæðubótarefni og drykki. Aloe Vera er m.a. gagnlegt gegn exsemi, sárum og bruna í húð. Þessir græðandi þættir eru m.a. vegna mucopolysaccharides efna sem eru í gelinu, sem er í innra laufi plöntunnar og acemannan (acetylated mannans). Aloe Vera nýtist vel sem rakagjafi á þurra húð, sérstaklega á viðkvæma andlitshúð og á bauga við augu.
Öll háefni okkar og vörur taka m.a mið af eftirfarandi:
B. Jurtir í te og hollustudrykki
Nútímamaðurinn, hollustu- og heilsufræði, auk heildrænna læknisfræða eru í auknum mæli, að enduruppgötva það sem forfeður okkar og mæður vissu; Notkun jurta, sem örugga og árangusríka heilsu- og fæðubætiefni. Margar jurtir eru aftur notaðar í þessum tilgangi í dag og sem mildir orkugjafar og hollustuvernd við hinum fjölmörgu heilbrigðisvandamálum nútímans. Mýrar og engi, öll fjöll og hæðir eru forðabúr graslæknisins auk þess að vottuð lífræn græðijurta framleiðsla fer vaxandi hér á landi, sem víða um allan heimtrúa og vita að þessi fræði eiga mörg erindi til nútímans og að náttúran nú sem fyrr eigi ráð og úrbætur fyrir betri heilsu og meiri lífsorku. Þessvegna notum við einungis bestu fáanlegu hráefni náttúrunnar, flest þessara efna eru beint úr náttúrunni á stöðum þar sem er jafnvægi og hreinleiki sjálfbærs umhverfis eða úr vottaðri lífrænni ræktun. Þessar jurtir eru síðan verkaðar með umhyggju og blandað saman í hollustu- og hreinsijurtablöndur okkar, þannig að þær halda öllum náttúrlegum efnum sínum nær ósnortnum.
Brunnperla (Nasturtium officinale). Brunnperla er rík af vítamínum, sérstaklega C, joði, járni, fosfötum og öðrum steinefnum. Inniheldur mikið af nærandi olíuefnum.
C. Vítamin, Enzym og önnur náttúruefni

Vörur fyrir Nudd- og Spastofur
Sunnan Vindar bjóða úrval gæða nuddolía, krem og lotion fyrir Nudd- og Spastofur. Við notum einungis bestu náttúrulegu hráefni og lífrænt vottuð hráefni, notum ekki kemisk efni, rotvarnarefni né jarðolíur. Allar okkar vörur eru þróaðar í samstarfi við nuddara, snyrtifræðinga og annað fagfólk. Áralöng reynsla og þekking tryggir gæðin.
Flora Organica Fætur Fótanuddkrem, sem er kælandi og ótrúlega slakandi. Fyrir þreytta fætur þegar komið er heim eftir amstur dagsins. Fæst bæði sem lotion og olía. Unnið úr; Vatni (Aqua), Aloe safa (Aloe barbadensis), Möndluolíu (Prunus dulcis), Aprikósukjarna (Prunus armeniaca) Jojoba vaxi (Simmondsia chinensis), Hesluhnetu (Hamamelis virginiann), Aloe olíu (Aloe barbadensis), Jurta Glycerin, Kvöldrós (Oenothers biennis), Moskurós (
Flora Organica Lotion Gott, einfalt, alhliða mýkjandi lotion án ilms, engin gerviefni. Unnið úr ; Vatn, Kókoshnetuolíu, Jurtaglycerín, Jurtaþeytivax Vínfræjaolíu, Aloe safa, Sveppa- og bakteríuvörn.
Flora Organica Nudd Lotion Þægilegt og slakandi nudd lotion, án ilms.
Unnið úr náttúrulegum hráefnum; Vatni, Hnetuolíu, Aloesafa, Aprikósusafa, Sjávarsmjöri, Jurtaglyceríni, Jojoba, Hesluhnetuolíu, E vitamíni, C vitamíni, Rósmarín, Neem olíu, Svartvíðisberki, , Sveppa- og bakteríuvörn.
Slökun Freyju **Freya Relaxing
Góð blanda af fræjum Suðurhafseyja, ilmur af Kukui, Mango, Avocado og Cocos olíum + Sólblóm, Vínberjaolia, Oliva, Mandla, Jojoba, Avocado, Cocohneta; Létt, "fitulítil" og með touch af Hawaijan / Micronesiu Nóttum.
Nuddolía, án ilms
Hlutlaus blanda af góðum nuddolíum. Unnin úr Sólblómum, Vínberjasteinum, Olivu, Jojoba, Avocado.
Professional Luxe Massage Blend
Blanda af mýkjandi og nærandi jurtum. Olíuval nuddarans. Unnin úr Sólblómum, Vínberjasteinum, Olivu, Möndlu, Jojoba, Avocado, Cocohnetu; Létt, "fitulítil" með litlu smiti .
Ný Orka *** Jojoba Citrus Body Mjúk, nærandi og orkugefandi nuddolía, með jojoba og möndluolíum. Góð einnig í baðið. Mandarin (Citrus nobelis),
Róandi ilmur og jurtir sem slaka á vöðvum og huga. Með jojoba, neroli, rósa- og möndluolíum. Góð einnig í baðið Ylang Ylang (Cananga odorata), Patchouli (Pogostemon cablin), Clary sage (Salvia sclarea),
Cellulite nuddolía
Mýkjandi olíur með jurtum sem vinna gegn cellulite húð. Eucalyptus (Eucalyptus globulus),
Fótanuddolía Hressir, mýkir og endurnærir þreytta fætur. Nuddið fætur kvölds og morgna. Með Eini, Furu, Lavender, Myntu. Solbloma, Jojoba og möndluolíum, kælandi og sótthreinsandi.
Neem Olia Ayurvedic úr Neem fræjum, sérstakur ilmur og græðandi jurtir eru í þessari olíu Unnið úr Neemolíu, Sólblómaolíu, Möndluolíu.

