![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
Jurta- og kjarnoliur fyrir nudd , olíur , krem....
Sunnan Vindar bjóða úrval gæða nuddolía, krem og lotion auk te- og græðijurta. Olíublöndur okkar, krem og lotion hafa margvíslega notkunar möguleika bæði fyrir slökun með nuddi eða sem snyrti- og heilsuvörur. Allar okkar vörur eru þróaðar í samstarfi
við fagfólk; nuddara, snyrtifræðinga, næringarfræðinga, lækna og aðrar græðarastéttir. Lögð er áhersla á umhverfisvænleika bæði hráefna og við lögun á vöru. Við notum einungis bestu náttúru efni og lífrænt vottuð hráefni í allar okkar vörur.
Við hvetjum þig til að prófa og njóta góðrar vöru úr náttúrunni! Ára löng reynsla og þekking tryggir gæðin.
![]()
|
|
Sunnan vindar, Hveragerði Póstsöluskrá 01 2010 |
|
| |||
|
Tegund |
Flora Organica vörurnar eru allar án kemiskra efna, 100% úr náttúru- og lífrænum efnum. |
Magn |
Verð | |||
|
Andlit & Háls |
Dagkrem. Án ilms. Morgunfrú Slakandi næturkrem. Án ilms Super AHA Frumumyndandi orkukrem Húðstyrkjandi hálskrem |
30 ml 60 ml 30ml 30 ml |
990.-1,590.- 1,990.- 1,990. | |||
|
Augu |
Silki augnkrem Augngel |
15 ml 15 ml |
1,990.- 1,990.- | |||
|
Kroppur |
Lotion Lotion með Aloe Vera og Kamillu Mýkjandi og slakandi Lotion Hreinsilotion með Myntu og Aloe vara Krem Karité Shea Mousse – Létt krem úr Shea smjöri, gott á allan kroppinn, mýkir og rakajafnar |
150ml 50 ml 150ml |
1,990.- 990.- 1,990.- | |||
|
Hendur og Fætur |
Handkrem, mýkjandi og rakagefandi Græðikrem mýkjandi og græðandi Fótalotion, kælandi og slakandi Fótakrem, græðandi, mýkjandi |
60ml 60 ml 60 ml 120ml |
990.- 990.- 990.- 1,090.- | |||
|
Heimilisúði með kjarn- olíu blöndu |
|
50 ml 150ml 50 ml 150ml |
990.- 1,990.- 990.- 1,990.- | |||
|
Tegund |
Nuddolíur Heilsulind & SPA |
Magn |
Verð | |||
|
Óblandaðar olíur |
Almond. Möndluolía, (Prunus amygdalus) Rakagefandi, mýkir og endurnærir. Góð við exemi, kláða, þura og bólgna húð. Auðug af D Vit. |
50 ml 150 ml |
990.- 1,490.- | |||
|
|
Avocado (Persea |
150 ml 50 ml |
2,290.- 990.- | |||
|
|
Grapeseed. Þrúgukjarnaolía, (Vitus vinifera) Létt og satin fín fyrir nudd. |
150 ml 50 ml |
1,490.- 790.- | |||
|
|
Jojoba, Jojoba olía (Simmondsia chinensis). Efni Jojoba olíu er mjög lík náttúrulegri samsetningu olíunnar sem er í húð manna. Hefur mýkjandi og rakagefandi áhrif á þroskaða og þurra húð. Jojoba hefur reynst vel gegn bólgum í húð s.s. sóríasis, bólum, ertingu í hársverði og mörgum húðsjúkdómum. |
150 ml 50 ml |
2.490.- 1,590.- | |||
|
|
Macadamia. (Macadamia integrifolia) Endurnýjar og græðir húð. Auðug af Palmitoleicsýru, sem yngir húð, einnig auðug af omega 3 og omega 6. Góð gegn sólbruna. |
150 ml 50 ml |
1,990.- 990.- | |||
|
|
Peach. Ferskjuolía (….) Rakagefandi, mýkir og endurnærir. Auðug af D Vit. |
150 ml 50 ml |
1,490.- 990.- | |||
|
Blandaðar slökunar- og græðiolíur, sem mýkja og slaka |
Luxe Massage Blend. Lúxus nuddolía úr blöndu af Sólblómum, Möndluolíu, Macademiu hnetu, Jojoba, Kókos, Avocado og Ferskju. Þægileg og ilmlítil slökunar- og nuddolía, sem rennur vel. Mýkir og græðir. |
150 ml 50 ml |
2,490.- 990.- | |||
|
|
Orka / Energy. Nuddblanda, sem eykur jákvæða orku. Með kjarnolíum; Rosemary KO; LemonKO; Peppermint Arvensis KO; Eucalyptus Blue Gum KO, í grunni af Pro Luxe. |
150 ml 50 ml |
2,490.- 990.- | |||
|
|
Hugarorka / Mental Clarity Náttúrulega leiðin til lifta huganum og njóta nuddsins. Gefur nuddinu aukið vægi, eykur slökun, hugarflug og tilfinningu nuddsins. Með kjarnolíum; Bergamont, Grapefruit, Lemon, Basil í grunni af Pro Luxe. |
150 ml 50 ml |
2,490.- 990.- | |||
|
|
Slökun / Stress Relief. Nuddblanda, sem slakar og eyðir öllu stressi með kjarnolíum; Ylang Ylang, Lemon, Lavender, Mandarin KO, Clary Sage í grunni af Pro Luxe. |
150 ml 50 ml |
2,490.- 990.- | |||
|
|
Yndisauki / Sensuality. Nuddblanda með kjarnolíum. Inniheldur: Cedarwood; Sweet Orange; Patchouli;Jasmine ogNeroli í grunni af Pro Luxe. |
150 ml 50 ml |
2,490.- 990.- | |||
![]()

![]()

![]()

|
Tegund |
Te- og jurtablöndur, Sunnan Vinda. |
Magn |
Verð |
|
Te |
Sencha Grænt te. Lífrænt ræktað. Selim Hill Darjeeling toppar (fig tops) dökkt te. Lífrænt ræktað. Oolung Sechung Lífrænt ræktað. Ilmmikið og silkimjúkt Oolung te með góða fyllingu. Með Rósum og Sítrus undirtónum ásamt ilm af Rósum og Bergmyntu. Grennandi te, lækkar kolestrol og eykur brennslu. |
50 gr. 50 gr. 50gr. |
490.- 490.- 890.- |
|
Blöndur |
Morgunte Homopatans Hóstahlé, við hósta og kvefi Hugarflug Freyja |
50 gr. 50 gr. 50 gr. 50 gr. |
790.- 790.- 790.- 790.- |
|
Græði- jurtir |
Essiak Islandica Blaðra og nýru
Magi og þarmar
Efnaskipti og Vatnslosun |
50 gr. 50 gr. 50 gr. 50 gr. |
1,590.- 790.- 790.- 790.- |
|
Hreinsi- Orku jurtir |
Ristilhvati /
|
40 gr. 40 gr. 50 gr. |
1,590.- 1,590.- 1,590.- |
|
Þörungar, þang og leir. |
#0501 Grænir þörungar (Spirulina platensis), #0503 Klóþang (Ascophyllum) #0504 Bentonite. (Medical Quality) |
100 gr. 100gr. 100 gr. |
990.- 990.- 1,590.- |

![]()
![]()
![]()
![]()

Sunnan Vindar bjóða úrval gæða nuddolía, krem og lotion auk te- og græðijurta. Olíublöndur okkar, krem og lotion hafa margvíslega notkunar möguleika bæði fyrir slökun með nuddi eða sem snyrti- og heilsuvörur. Allar okkar vörur eru þróaðar í samstarfi við fagfólk; nuddara, snyrtifræðinga, næringarfræðinga, lækna og aðrar græðarastéttir. Lögð er áhersla á umhverfisvænleika bæði hráefna og við lögun á vöru. Við notum einungis bestu náttúru efni og lífrænt vottuð hráefni í allar okkar vörur. Við notum engin kemisk efni, jarðolíur né liti, sem kunna að vera heilsuskaðleg og notum því ekki Paraben, Lanolin, Vax, Vaseline, Parafenylendiamin, Neomycin, Benzokain, Cliochinol, Kolofonium eða Formaldehyd.
Við hvetjum þig til að prófa og njóta góðrar vöru úr náttúrunni! Ára löng reynsla og þekking tryggir gæðin.
Um græðijurtablönduna Essiak
Jurtablandan er komin frá Ojibwaya “indíána” (fyrstu þjóðar) þjóðflokknum í Kanada, en hefur verið framleidd allt frá 1922. Það var kanadíska hjúkrunarkonan Rene Caisse sem hóf rannsóknir og lækningar, m.a. á krabbameini, með jurtablöndu sem hún byggði m.a. á reynslu grasalækna Ojibwaya manna. Allar jurtir í þessar blöndu eru vel þekktar græðijurtir sem hafa verið notaðar um aldir og einnig í nútíma óhefðbundnum meðferðum.
Sunnan Vindar bjóða jurtablöndu, sem löguð er að íslenskum aðstæðum og matarræði. Í þeirri blöndu hefur verið bætt við íslenskum jurtum. Vísað er hér jafnframt til umsagna neytenda / sjúklinga og í þær rannsóknir sem gerðar hafa verið sbr. hér á eftir þar sem bent er á þessa þætti í bókum og á vefsíðum um efnið. Lögð er áhersla á að jurtablandan hefur verið notuð um árabil með góðum árangri: Samefli (synergi) efna og lífhvata í þessum jurtum
Essíak stuðlar að bættum frumuvexti og styrkir ónæmiskerfi líkamans.
Rene M. Caisse R.N. (1888 - 1978) byrjaði athuganir sínar á jurtablöndunni þegar hún starfaði við “Sisters of
Dr. Fisher fylgdist með athugunum hennar og hvatti til frekari rannsókna. Rene náði fljótt góðum árangri, sérstaklega við að hjálpa sjúklingum sem langt voru leiddir af krabbameini. Þetta vakti athygli fleiri lækna, sem m.a. skrifuðu undir yfirlýsingu til Heilbrigðisráðuneytis Kanada um að Rene yrði útveguð aðstaða til að koma á fót sérstakri heilsugæslustöð fyrir krabbameinssjúklinga. Rene tókst með þessari aðstoð að koma á “Cancer Clinic” og rannóknaraðstöðu í heimabæ sínum Bracebridge í
Ónæmiskerfi líkamans
Efnaþættir í þeim jurtum sem jurtablandan er unnin úr hefur jákvæð og styrkjandi áhrif á ónæmiskerfi líkamans, jafnframt því að stuðla að endurnýjun fruma, styrkir vefi og húð auk þess að virka jákvætt á aðra þá þætti sem stuðla að betra heilsufari. Athuganir og rannsóknir hafa sýnt að saman auka þessar plöntur jafnvægi milli líkamsþátta, þær eru blóðhreinsandi og
· Stundið slökun og hugleiðslu eins og t.d. yoga og tai chi.
· Bætið næringarþætti með að auka daglegan skammt af lífrænt ræktuðu grænmeti og ávextum, hnetum og fræjum auk góðrar blöndu af grófu kornmeti. Þetta bætir efnaskipti líkamans og eiginleika til að lagfæra það sem aflaga hefur farið auk þess að stuðla að almennri vellíðan.
· Slepptu allri fitu, unnum matvælum sem innihalda auk- og rotvarnarefni, gerfibragð- og litarefnum úr fæðu þinni.
· Láttu heilsufars ráðgjafa þinn kanna efnaskiptin og stöðu nauðsynlegra snefilefna í líkama þínum. Snefilefnin eru lífsnauðsynleg til að viðhalda jafnvægi í heilbrigðu ónæmiskerfi.
· Neyttu nægjanlegra vítamína.
· Drekktu 3 – 5 glös af vatni daglega m.a. til að stuðla að og auka losun eiturefna og úrgangs úr líkamanum. Athugaðu að líkaminn getur losað sig við allt að 5 lítra af vökva daglega.
· Hvíldu þig vel. Lágmark er að ná 6 tíma svefni á sólarhring.
· Farðu í gönguferð, syntu eða hjólaðu minnsta kosti í 15 mínútur daglega.
Ráðlagt er að taka seyðið 1 – 2 á dag. Takið tveim tímum fyrir eða tveim tímum eftir máltíð. Bestur árangur næst ef tekið strax á morgnana og á kvöldin fyrir svefn. Notið ½ bolla (60 ml) af seyðinu í hvert skipti, ágætt er að blanda það með heitu vatni. Drekkið jurtseyðið samkvæmt leiðbeiningum og leitið ráða hjá heilsufarsráðgjafa, lækni eða næringarfræðingi
1. Jafnar kolestról styrk með að breyta fitu og sykri í orku.
2. Minnkar líkur á að fita hlaðist á æðaveggi, á hjarta, nýru og lifur.
3. Blóðhreinsandi.
4. Eyðir sníkjudýrum í meltingarvegi.
5. Myndar mótvægi og hreinsar eiturvirkni frá kvikasilfri, áli og blýi.
6. Verndar gegn neikvæðum áhrifum fá röntgen og annarri geislun.
7. Styrkir og eykur sveigjanleika himna í liðamótum, beinum, lungum og eitlum, vinnur gegn streitu og streituskemmdum.
8. Styrkir vefi, líffæri og vöðva.
9. Eykur virkni og vökvaupptöku í vefjum.
10. Eykur framleiðslu rauðra blóðkorna og varnar skemmdum í þeim.
11. Eykur möguleika líkamans til súrefnisupptöku, m.a. með auknu súrefni í stoðfrumum.
12. Viðheldur bættum efnskiptum og betra jafnvægi við næringu fruma líkamans.
13. Eykur næringu til heila og taugakerfis.
14. Varnar að eiturefni geti borist til heila.
15. Losar og fjarlægir uppsöfnuð eiturefni úr fitu, eitlum, beinmergi, blöðru og næringar vinnslu líffærum.
16. Hreinsar öndunarfæri með aukinni slímlosun.
17. Minnkar álag á lifur með því að umbreyta eitruðum fituefnum og
18. Auðveldar myndun lecitins í lifur, umbreytir í myelin sem er efni sem verndar og umlykur taugaenda.
19. Minnkar og mögulega fjarlægir alveg þungmálma,sem sest hafa í vefi, sérstaklega við liðamót, minnkar þannig stífni og sótthita í liðamótum.
20. Eykur virkni briskirtils og milta við aukningu virkni insulins.
21. Auðveldar losun efna og gerir þau óvirk í þvagi. Jafnar efna- og oxalic sýrustreymi til nýrna og minnkar þannig líkur á myndun nýrnasteina í gallblöðru, nýrum og og þvagrás.
22. Dregur úr sársauka, eykur lyst, jafnar orku og eykur með því vellíðan.
23. Flýtir fyrir að sár gróa með nýmyndun fruma skemmdra svæða..
24. Eykur framleiðslu mótefna t.d. í sogæðum og T-fruma í hóstakirtli.
25. Varnar og hugsanlega eyðir myndun illkynja hnúta og æxla.
Innihald í jurtablöndunni ESÍAK ISLANDIA:
Plöntur í heilsujurtablöndunni ESÍAK eru vottaðar lífrænt ræktaðar og villtar jurtir, tíndar þar sem gott jafnvægi er í náttúrunni. Allar plönturnar styðja við starfsemi líffæranna m.a. með flóknu samefli (synergi) efna- og lífhvata plantnanna, t.d. að betri vexti nýfruma, bættri hreinsun blóðsins auk annarra fjölþættra styrkjandi og hreinsandi þátta. Skv. rannsóknum plöntulyfjafræða og efnafræði plantna hafa plöntur í jurtablöndunni m.a. eftirfarandi eiginleika:
Brunnperla (Nasturtium officinale). Brunnperla er rík af vítamínum, sérstaklega C, joði, járni, fosfötum og öðrum steinefnum. Inniheldur mikið af nærandi olíuefnum.
Þær upplýsingar sem hér eru og aðrar er m.a. að finna í bókinni “Essential Essiac” eftir Sheilu Snow og Mali Klein (Gill & Macmillan, Dublin 1999), ESSIAC ~ The Secrets of ESSIAC Rene Caisse's Herbal Pharmacy eftir sömu höfunda (Newleaf, Gill & Macmillan, Dublin 2001) ISBN 0-7171-3228-5., OPTIONS: THE ALTERNATIVE CANCER THERAPY BOOK eftir Richard Walters (Avery Publishing 1993) ISBN 0895295105, THE ESSIAC REPORT: Canada's Remarkable Unknown Cancer Remedy eftir Richard Thomas (Alternative Treatment Network, 1993) ISBN 0-9639818-0-3, CALLING OF AN ANGEL: Nature's Cure for Cancer eftir Dr. Gary L. Glum (Silent Walker Publisher 1988,ISBN 0-9620364-0-4). ESSIAC AND THE TREATMENT OF CANCER AND OTHER DISEASES (Gordon Press, March 1995, ISBN 0849066646). Einnig er sérstaklega bent á rannsóknir og bækur Dr. Julian Whitaker forstjóra Whitaker Wellness Institute í
Upplýsingar þessar eru til fróðleiks en eru ekki ætlaðar til lækninga. Hlustaðu á líkama þinn, leitaðu frekari upplýsinga og ræddu alltaf við heilsufarsráðgjafann þinn eða lækni fyr en seinna.
Unnið fyrir Sunnan Vinda Hveragerði www. Sunnanvindar.com 03/2008

Ristilhreinsun
Hvað segja þeir sem notað hafa ristiltvennu ?
“Eftir ristilkúrinn líður mér svo vel og ég er full orku, það er eins og ég hafi farið í líffæra skrúbb og spúlun, þvílíkur munur ! Var á kúrnum í meir en mánuð og það leið ekki dagur án þess að eitthvað verulega einkennilegt var losað úr í salernið ! Mikið slím, kögglar sem líktust soðinni lifur, langir samantvinnaðir drjólar eins og kaðlar og fremur ógeðfelld sníkjudýr eða ormar ! Alveg hræðilegt. En á eftir, hvílík vellíðan !”
“Við höfum sérstaka ástæðu til að segja frá okkar reynslu; Við prófuðum kúrinn með verulega góðum árangri. Við erum viss um, að ef móðir mín hefði komist tímanlega í slíka hreinsun, þá væri hún enn á lífi, en hún dó núna í júní 2003 eftir hræðilega pínu og veikindi sem öll áttu upptök sín í risitlvanda. Mælum sérstakleg með þessari einföldu meðferð.”
“Við erum búin að nota þessa ristilhvata meðferð núna í tæpan mánuð og ætlum svo sannarlega að halda áfram, ótímabundið; Allur hægðavandi og tregða horfin. Kallinn
Hvenær er best að byrja ? Þú byrjar þegar þú ert klár, hvenær sem er. Kannski ágætt að byrja um helgi til að venjast kúrnum, laugardagsmorgunn er t.d. ágætur tími til að byrja.
Hvenær sér maður árangur ? Mörgum finnst þeir finni breytingu strax á fyrstu dögum, jafnvel aukna orku strax eftir fyrstu vikuna. Ef þú vilt “sjá” árangurinn þá fylgstu með hægðum og því sem þú losar þig við. Margt kemur þar á óvart, jafnvel þó hafa ber í huga að 70% af örverum, aðskotaefnum og aðskotadýrum sést einungis í smásjá.
Er líklegt að maður leggi af við hreinsunina ? Já flestir léttast talsvert, oft 2 – 10 kg. Maginn minnkar, þ.e. hann verður minna þrútinn og flatari ! Mengandi efnin sem þú losar þig við eru nú horfin og það sést á útlitinu, jafnvel þarftu að fá þér nýtt belti, allavega að herða um 2-3 göt ! Strax og líkaminn er laus við aukaálgið nýtir líkaminn fæðuna betur og viðkomandi verður ekki eins sólginn í sætindi og fitu. Að sjálfsögðu verður fæðuval þitt líka sjálkrafa gert með ábyrgari hætti fyrst þú ert búinn að fara í gegnum þetta hreinsunarátak.
Hvernig er er best að skipuleggja hreinsitímann ? Ef þú ert að vinna að ristilhreinsun í fyrsta skipti með jurtum, þá er ráðlegt að gefa sér góðan tíma með breyttu matarræði, helst í einn til tvo mánuði. Mundu að það hefur tekið áratugi hjá þér að safna mengandi og heilsutefjandi efnum í meltingarfærin og sérstaklega í ristilinn. Mikilvægt er að drekka mikið af vatni eða ávaxtasafa á hreinsitímanum, glas eftir hverja inntöku og 6-8 glös yfir daginn, það er mikilvægur þáttur af hreinsiferlinum. Ef þú ert á lyfjum er rétt að taka þau klukkustundu áður en jurtir eru teknar inn. Ef heilsan er ekki góð þá er alltaf ráðlegt að ráðfæra sig við lækni eða heilsufarsráðgjafann þinn. Þeir sema fara í slíka hreinsun árlega láta nægja mánuð, svo eru aðrir sem finnst fylgja það mikil vellíðan og bætt heilsa af þeim jurtum, sem notaðar eru, að þeir nota hluta af meðferðinni daglega, á það sérstaklega við blöndu #2 “Ristilorka”, en í henni eru bæði orkuaukandi jurtir sem innihalda mikið af vítamínum og steinefnum, síðast en ekki síst inniheldur blandan einnig lífelfdar örverur, “probiotics”.
Hvað er best að borða á hreinsitímanum ? Þó ekki þurfi að vera á sérstökum matarkúr samfara ristilhreinsun, þá er alltaf góð hugmynd að halda sig við hollustufæði; Borðið lífrænt grænmeti og ávexti, kornmeti, hnetur og fræ er gott fæði á hreinsi tímanum. Íslenskt sjávarmeti er alltaf hollt en reynið að borða ekki mikið af neinu kjöti né unnum kjötvörum, notið sem minnst af mat úr dós, sem minnst af salti, sykri, mettuðum fitum, kaffi og sleppið helst bjór og sterkum vínum. Ef þú reykir, hættu strax. Heilbrigður ristill, jákvæð flóra og bakteríur hans er grunnur að að sterku mótvægiskerfi líkamans, góðri heilsu og langlífi. Margar mjólkursýrubakteriur og aðrar jákvæðar bakteríur s.k.”Probiotics” eða lífelfdar örverur stuðla að hreinsun og heilbrigðu meltingarkerfi.
Hægt er að skipta örverum (bakteriur, sveppir o.fl) í ristli í tvo hópa, þ.e. “góðar” og “slæmar”, þær “slæmu” framleiða margvísleg eitruð úrgangsefni, sem stuðla að langvarandi sjúkdómum og hrörnun líkamans. “Góðu” örverurnar, þær sem oft eru kallaðar “probiotics” eða lífelfdar, hafa áhrif á grósku eða flóru jafnvægi í meltingarvegi, þær stöðva vöxt þeirra “slæmu”, t.d. candida sveppsins, stuðla að betri meltingu og úrvinnslu næringaefna, styrkja ónæmiskerfið og mótvægi gegn sýkingum.
Þeir sem eru með kröftuga flóru af jákvæðum örverurum er jafnan heilsugóðir og hafa gott mótvægi gegn sjúkdómum. Miljarðar og trilljónir slíkra örvera eru í heilbrigðum meltingarvegi og um 400 tegundir. Lactobacillus acidophilus er ein sú þekktast, fleiri stuðla að góðri heilsu, við nefnum hér t.d. Lactobacillus salivarius/casei/rhamnosus, Bifidobacterium bifidum/longum/lactis og Streptococcus thermophilus. Í heilbrigðum ristli eru þær “góðu” langtum fleiri en þær “slæmu”, þó getur ristillinn og meltingarvegurinn lifað með 15% “slæmra” bakteria ef m.k. 85% eru af lífeldu eða probiotic örverum eins og Lactobacilli og Bifidobacteria. Við nútíma matarræði, stress og sýklalyf er þessu oft öfugt farið. Það er margt sem skemmir viðkvæma meltingar og ristilflóruna; klór og sodium efni geta verið í drykkjum og matvælum, kaffi og brennivín skaðar flóruna auk þess sem áður var nefnt; sýklalyf, stress og nútíma lífsstíll getur allt haft slæm áhrif þannig að þeim “illu” bakterium fjölgar og sjúkdómar herja á. Það er því ekki að ósekju máltækið “Dauðinn byrjar í ristlinum. Hægt er að styrkja þær lífeldu með ýmsum trefjaríkum jurtum og ræktuðum lífelfdum örverum eins og t.d. Lactobacilli og Bifidobacteria. Í ristilþrennu okkar eru bæði þessar trefjaríku jurtir auk hreinsandi jurta, fjöldi lífelfdra örvera auk sérunninna jurtaefna og leirtegunda, sem draga eiturefni úr ristilveggjum styrkja þá og stuðli að nýrri og betri orkuþáttum.
Ristilhvati #1 Byrjið á að nota #1 í 3-5 daga. Ristilorka #2 Notið í 2-4 vikur.
Ristilhreinsun; Jurtatvenna sem hreinsar og styrkir meltingarveg og ristil.
Helstu kostir við árangursríka ristilhreinsun;
Almennt má segja að heilsufar og almenn líðan stór batni þegar fólk hugar vel að meltingarvegi og hreinsun þeirra mikilvægu líffæra sem vinna næringu úr fæðunni. Alltaf er best að byrja alla slíka hreinsun með ristilmeðferð, sem hver og einn getur stjórnað sjálfur og er ekki of mikið álag á líffærin. Eitt af hlutverkum ristilsins er að þétta fæðuúrgang, vinna úr vökvum og taka við t.d. B vítamínum, sem framleidd eru í fæðuvegi og þörmum. En afeitrun og hreinsun líffæra á ekki að einskorðast við ristilinn. Jafn mikilvægt er að vinna að hreinsun nýrna, lifur og æða, já í raun allar frumur líkamans. Slíka hreinsun er hægt að framkvæma með réttu mataræði og góðum lífsstíl, föstu og jurtablöndum, sem hafa verið gerðar fyrir einstök líffæri og í flestum tilvikum er mjög góða reynsla af slíkum samelfdum jurtablöndum og oftar en ekki vísindalegar rannsóknir að baki. En byrjið samt alltaf á slíkri hreinsun með því að hreinsa ristilinn fyrst, því ef það líffæri er ekki sæmilega hreinsað getur það valdið innri mengun annarra líffæra, því eins og máltækið segir; “Dauðinn byrjar í ristlinum”. Gættu því að ristilheilsu þinni, það getur skipt sköpum og verið lykilinn að varanlegri og góðri heilsu. Jurtatvenna okkar er unnin úr lífrænt rætuðum jurtum og öðrum náttúrulegum hráefnum;
1. Ristilhvati; Hreinsar og styrkir meltingarveg og ristil.
2. Ristilorka; Viðheldur bættri ristilheilsu og gefur nýja kröftuga orku.
Meiri orka – Minna stress – Jafnvægi huga og líkama....
Skortur á orku og slen er ein algengasta sjúkdómskvörtun í dag. Slík síþreyta getur orsakast af margbreytilegum þáttum, en oft er orsaka að leita til ástands í líkamanum, sem stafar af einhverskonar eitrun. Þrátt fyrir að þú borðir sæmilega hollan mat þá geta óholl efni bæði frá umhverfinu og úr fæðunni hlaðist upp í líffærum og hindrað rétta nýtingu nauðsynlegra næringarefna. Þessi eiturefni, “dauð” og illa melt fæðuefni valda lélegri meltingu, harðlífi, stíflum, ristilhleðslu, fitu- og uppþembu, lélegri orku og sleni. Þessi algengu einkenni eru mikið meira en óþægindi, þau geta valdið langvarandi heilsubresti, sjúkdómum og dauða.
Ert þú með sníkjudýr innvortis ? Það er því miður mikið algengara en margur heldur; skv. upplýsingum heilbrigðisdeildar Sameinuðu þjóðanna þá er ástandið í fáum orðum þannig; “Um 1.5 miljarðar manna er sýktir af hringormum og er það þriðja algengasta sýking hjá mönnum í heiminum í dag. 1 miljarður manna er sýktur af svipuormum………. Meir 1,3 miljarður er sýktur krókormum, svo fátt eitt sé nefnt af sýkinga pöddum sem menn bera með sér innvortis…..” Vissulega tengjast flestar þessar sýkingar lélegum vatnsbólum, slæmu húsnæði og lélegu matarræði í þróunarlöndum en samt eru þær algengar á vesturlöndum og fara jafnvel vaxandi. Við prófanir hefur komið í ljós að fjöldi fólks er jákvæður t.d. með ýmsar nematóður; “Sýklafræðideild háskólans í
"Flestir, sem hafa borðað að staðaldri nútímafæðu og skyndibitamat og eru að nálgast miðjan aldur, eru mjög líklega með m.k. 3-5 aukakíló af hörðu “jukki”, sem hefur sest að í ristlinum. Ef tekin eru dæmi af gömlum “félögum”, þá er sagt að við krufningu leikarans ástsæla, John Wayne, hafi komið í ljós 20 kíló af þétthörðum úrgangsefnum í ristilvegi.
Fylgir sögunni að við krufningu söngvarans ágæta, Elvis Presley, hafi sambærilegt magn af eitruðu rusli í ristli verið um 30 kíló. Í raun dó Elvis úr harðlífi, sem leiddi til hjartastopps”
Merki um innri eitrun:
Eftirfarandi einkenni geta verið til marks og aðvörunar um að einhverskonar eitrun, sníkjudýr, sveppir, slæmar örverur og sýkingar sé að valda sjálfeitrun í líffærum;
Sunnan Vindar bjóða einnig
m.a. eftirfarandi tejurtir;
Grænt te; Sencha. Dökkt te; Rajah, Selim Hill Darjeeling toppar,
Oolong
Hollustu jurtir sem styrkja og auka orku; Fegurð, Freyja, Freyr, Tantra, Slökun
Græðijurtablöndur grasalæknisins, Styrkjandi og fyrirbyggjandi jurtair:
Essiak Islandica, Hóstahlé, Hugarflug, Efnaskipti og vatnslosun, Blaðra og nýru,
Magi og þarmar, Hjarta og æðar, Lifur og Gall.
Hreinsi- og orkublöndur, duftte. Styrkja – Hreinsa – Auka Orku;
Ristilhvati, Ristilorka, Orka, Hugur og gott minni,
Yngisjurtir, Ný Náttúra
Sjá nánar í vöruskrá.
Birgir Þórðarson náttúrufræðingur
Um gróðurnytjar (Grein í blaðinu Umhverfið)
Á undanförnum árum hefur verið töluverð endurvakning á ræktun og nytjum gróðurs, sem fyr á tímum var notaður til heilsubótar og lækninga.
Má segja að nytjar þessar séu nú stundaðar um allt land og margvísleg atvinna og gagn af að aukast.
Ýmsar tilraunir og vísindalegar rannsóknir hafa einnig færst í vöxt, gætir hér vissulega áhrifa erlendis frá, en þekking á gagnsemi jurta til hollustu, byggð á reynslu ásamt vísindlegum efnagreiningum hefur aukist gífurlega á síðustu árum. Rannsóknir á eiginleikum jurta til lækninga er nú stundaðar við margar vísindastofnanir og háskóla víða um heim. Uppgötvanir eru gerðar daglega varðandi gagnsemi jurta, jafnframt því að þekking á því sem ber að varast eykst einnig.
Hér á landi hefur verið unnið að slíkum rannsóknum á vegum Háskóla Íslands, við stofnanir og nokkur fyrirtæki, með það að markmiði að þróa hollustuvörur og framreiða lækningamátt jurtanna.
Einn af þeim frumkvöðlum, sem endurvakið hefur trú manna hér á landi á gagnsemi jurta til heilsubótar, er Ævar Jóhannesson. Ævar hefur öðlast mikla þekkingu á lækningamætti margra jurta og hvernig æskilegt er að raða jurtum saman til að ná góðum árangri. Þannig hefur t.d. blanda, sem m.a. er unnin úr lúpínurót, njóla, litunarskófum og hvönn, reynst vel til styrktar ónæmiskerfi líkamans. Margir eru þeir, sumir t.d. langt leiddir af ýmisskonar krabbameini, ofnæmis- og húðsjúkdómum, sem fengið hafa vökva þennan til inntöku og hafa styrkst það mikið að líkami þeirra hefur náð að vinna bug á sjúkdómnum. Í mörgum tilvikum hefur verið um að ræða að dauðinn einn blast við sjúklingnum, en seyði Ævars, sem hann lætur af hendi án gjalds, styrkt það mikið að heilsu hefur verið náð á ný. Ekki hefur Ævar litið á sig sem lækni heldur fræðara, sem miðlað hefur margra áratuga þekkingu og reynslu. Þetta hefur hann m.a. gert með greinaskrifum sínum, en Ævar hefur haft umsjón með blaðinu “Heilsuhringurinn” í yfir 20 ár. Þó Ævar sé fróður af langri reynslu um læknisfræðileg málefni hafa sumir læknar kallað hann “skottulækni” og neitað að koma á samvirkum læknisfræðilegum athugunum á jurtablöndum þeim sem Ævar býr til. Sigmundur Guðbjarnason rektor hefur þó haft mikla trú á störfum og kenningum Ævars og m.a. fyrir hans tilstilli hafa verið gerðar efnafræðilegar athuganir við Háskóla Íslands á jurtum Ævars. Hluta þessara athugana er þegar lokið og hafa þær staðfest efnafræðilega eiginleika umræddra jurta og hvers vegna þær virka græðandi t.d. fyrir ónæmiskerfið. Jafnframt hefur það vakið athygli að virk efnasambönd í íslenskum jurtum eru oft meiri og gagnlegri en úr sambærilegum jurtum erlendum. Fyrirtækið Íslenskar heilsujurtir hafa nú unnið að þróun jurtaafurða til heilsubótar, eru þessar afurðir byggðar á umræddum rannsóknum og kenningum Ævars.
Einn er sá bóndi sunnlenskur sem komið hefur að verkefni þessu, er það Ingólfur Guðnason á Engi í Biskupstungum. Ingólfur hefur um margra ára skeið ræktað í garðyrkjustöð sinni af mikillri þrautseigju margvíslegar kryddjurtir. Framleiðsla þessi er þekkt meðal sælkerakokka landsins og margra annarra neytenda fyrir einstök og örugg gæði, enda framleiðslan unnin eftir reglum lífrænnar ræktunar og vottuð sem slík af vottunarstofunni Tún. Kryddjurtaframleiðslan hefur aukist jafnt og þétt og er nú meir en 1000 fermetrar undir gleri í ræktun allt árið, jafnframt hefur fjölbreytnin aukist verulega og boðið uppá bæði krydd í jurtapottum og sem afskorna framleiðslu. Jafnframt öflun þekkingar um ræktun kryddjurta hefur Ingólfur kynnt sér nytjar og ræktun lækningajurta. Um nokkurt skeið hafa staðið yfir að Engi tilraunir með útiræktun nokurra íslenskra lækningajurta og hafa tilraunir þessar lofað góðu um framhaldið. Frá Engi hafa því komið nokkrar þær tegundir jurta, sem unnið hefur verið að rannsóknum á í verkefni Háskóla Íslands, Íslenskra heilsujurta og Ævars Jóhannessonar.
Af öðrum rannsóknum, sem núna standa yfir hér á landi á eiginleikum jurta, má nefna rannsóknir við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands og er það Kristín Ingólfsdóttir prófessor í lyfjafræði sem stýrir þeim í samstarfi við erlenda aðila. Er í verkefni þessu lögð áhersla á rannsóknir á ýmsum mosategundum og fjallagrösum, en sem kunnugt er hafa fléttur verið notaðar frá aldaöðli til margvíslegra lækninga. Í verkefninu er m.a. verið að kanna efnaþætti þessara grasa og hvernig þau virka græðandi fyrir ónæmiskerfið og hvernig lækningarmáttur þeirra hefir áhrif á t.d. öndunafærasjúkdóma, magasjúkdóma og æxlisfrumur en þetta eru ein helstu vandamál, sem líkami nútíma mannsins þarf oft að kljást við auk offitu og streitu.
Víða um land, í öllum landshlutum, er unnið að framleiðlslu á margsháttar jurtavörum, í flestum tilvikum er um handverk í smáum stíl að ræða og lofar margt góðum árangri. Ýmsar náttúrulegar snyrtivörur eru nú unnar þannig hér á landi, margskonar græðandi smyrsl, jurta- og kjarnaolíur með óendanlegum eiginleikum til heilsubótar og vellíðan, blómadropar, hollar tejurtir og tinktúrur, auk þess að remedíur til smáskammtalækninga hafa nú loks verið heimilaðar hér. Allt þetta á sér m.a. rætur að rekja til aukins áhuga og þekkingu fólks á náttúrulækningum og öðrum heildrænum aðferðum til lækninga. Fólk er farið að skilja að ekki nægir að skoða einstaka líkamshluta í veikindum, heldur þarf að skoða líkamann í heild sinni, umhverfi hans og sálarástand. Virðing fyrir manneskjunni, hlutverk guðdómsins, lífsorkan, flæði og jafnvægi orkunnar, yin og yang eru þættir sem taka þarf tillit til við heilsu- og hollustubót manns og náttúru.
Um þessar mundir hafa Bændasamtök Íslands og verkefni samtakanna og landbúnaðarráðuneytisins, Áform, hvatt þá sem vinna að gerð smyrsla og annarra íslenskra hollustuvara að hafa samband við verkefnið ef áhugi væri á að koma viðkomandi vöru á markað erlendis. Ljóst er að markaður náttúruvara hefur stóraukist á síðustu árum í heiminum, t.d. var sala í Bandaríkjunum á heilsuvörum unnum úr jurtum (þ.e.”herbal supplements” ekki unnin vítamín né lyf) árið 2000 um 591 miljarður króna
Flestar þær jurtir íslenskar, sem rannsóknir beinast nú að er að finna í viðkvæmri náttúru landsins. Eiginleikar jurtanna eru mótaðar af okkar hreina, kalda loftslagi, stuttu vaxtarskeiði og löngum sumarnóttum. Þessi viðkvæmi fjársjóður hefur verið vanmetinn á seinni árum, þó nú séu margir að uppgötva hann á ný. Því ber að fara fram með mikillri varúð við nýtingu þessa þáttar náttúru landsins. Flestur villigróður vex hægt og er lengi að ná fullum þroska, mikilvægt er því að ganga vel um landið sem nytjað er og ganga ekki nærri gróðurfjársjóðnum jafnframt því að hvíla land í nokkur ár milli nytja.
Verndum náttúru landsins og dýrmæta fjársjóði hennar, fyrir framtíðina.