SUNNAN VINDAR

South Winds Botanicals

Leiðarvísir

  Heal the Planet

Innihaldslýsing og Leiðarvísir um lögun og notkun ESÍAK jurtablöndu fyrir betri heilsu og hollustu

Leiðbeiningar um lögun og notkun :

Gott er að  hafa eftirfarandi áhöld og fara svona að, við lögun jurtaseyðisins.

  • 3 lítra pottur,  úr ryðfríu stáli, úr hitaþolnu gleri eða emaleraður alls ekki nota pott úr áli.
  • Mælikanna úr gleri. 
  • Netsía úr stáli, 'V'  laga er best.
  • Matartrekt úr stáli eða gleri.
  • Stór hrærisleif úr tré eða gleri.
  • Látið renna 3 lítra af vatni í pottin, vatnið úr krananum er oftast best.
  • Eftir að suða er komin upp,  látið jurtirnar í pottinn, 30 grömm af jurtum í 3 lítra, gefa um 2.7 lítra af seyði. Þetta magn dugar einstaklingi  tæpa  mánuð.
  • Minnkið hitann, látið lokið á pottinn og sjóðið rólega í 10 mínútur.
  • Takið pottin af hellunni, og hrærið jurtaseyðið vel.
  • Setjið nú lokið á pottinn og látið standa, t.d. yfir nótt ef soðið er að kveldi,  á hellunni og kólna rólega í næstu 12 tímana.
  • Hitið nú aftur þar til suðan rétt kemur upp, hrærið ekki og látið standa þar til suða hættir. Þegar jurtaseyðið hefur kólnað nægjanlega hellið þá úr pottinum gegnum síuna og í glerkönnuna eða beint á flöskurnar.
  • Glerflöskur, þarf að sótthreinsa með sjóðandi vatni fyrir notkun.
  • Munið að sótthreinsa flöskutappana líka. Kælið flöskurnar lítillega eftir sótthreinsun.
  • Hellið á flöskunar, skrúfið tappann á og látið kólna áður en sett er í kalda geymslu eða í kæliskápinn, látið flöskurnar standa uppréttar.
  • Geymið seyðið, eftir að það kólnar, alltaf í kæli. Má þó alls ekki frjósa.

Magn og inntaka

  • Oftast er örlítið set á flöskubotninum, hristið upp í flöskunni.
  • Látið ½  bolla (50ml) af seyðinu í bolla með heitu vatni.
  • Takið inn tvisvar á dag, á fastandi maga, t.d. snemma á morgnanna  og  fyrir svefn.
  • Neytið ekki matar né drykkjar í a.m.k. eina klukkustund eftir inntöku seyðis.

Innihald í jurtablöndunni ESÍAK ISLANDIA: Plöntur í heilsujurtablöndunni ESÍAK eru vottaðar lífrænt ræktaðar og villtar jurtir, sem ekki eru í útrýmingarhættu og tíndar þar sem gott jafnvægi er í náttúrunni. Allar plönturnar styðja við starfsemi líffæranna m.a. með flóknu samefli (synergi) efna- og lífhvata plantnanna, t.d. að betri vexti nýfruma, bættri hreinsun blóðsins auk annarra fjölþættra styrkjandi og hreinsandi þátta. Skv. rannsóknum plöntulyfjafræða og efnafræði plantna hafa plöntur í jurtablöndunni m.a. eftirfarandi eiginleika:

Búrblaðka (Krókalappa)  (Arctium  lappa) Búrblaðka hefur verið notuð sem græðijurt  um aldir víða um heim. Hún stuðlar  að vexti og nýmyndum á heilbrigðum frumum. Styrkir  heilbrigði gallblöðru og nýrna.  Gott sem fæðubót og stuðlar að heilbrigðu jafnvægi blóðsykurs.

Græðisúra (Rumex acetosella) Í Græðisúru er mikið af vítamínunum  A, B, C, D, K, P, U og  E. Stein- og snefilefnainnihald er hæst af kalsíum, járni, kísil, magnesíum, brennisteini, zinki, mangan, joð og kopar. Einnig er Græðisúran rík af  beta karoteni, blaðgrænu og citric, malic, oxalic, barkar  og tartaric sýrum. Öll þessi efni eru mikilvæg fyrir starfsemi eitla líkamans.  Einnig styrkja þessi efni flutning súrefnis um líkamann, krabbameinsfrumur drepast t.d. í snertingu við súrefni. Græðisúra er bólgueyðandi, kælandi, þvag- og hægðalosand. Græðisúran stuðlar að betri heilsu í meltingarfærum og stoðvefjum. Inniheldur einnig efnaþætti sem jafna rakaþætti og næringu  húðar.

Fjallagrös (Cetraria islandica) Fjallagrös eru mjög nærandi, þau eru rík af bakteríueyðandi efnum og  slímefnum m.a. likenín, mjög rík af flestum steinefnum, sérstaklega járn- kalíumsöltum. Fjallagrös eru græðandi og  sérstaklega góð við öllum sárum og bólgum  t.d. í meltingarvegi og öndunarfærum. Þau minnka ertingu frá magasýrum og græða sára slímhúð. Góð gegn exemhúð og þurrum hósta.

Vallhumall (Achillea millefolium) Vallhumall inniheldur m.a. ilmolíur (essential oils) sem í eru m.a. kíneol, ásúlen, júgenol, tújón, pínen, og kamfóra. Sérstaklegagóð  fyrir útæðakerfi og lækkar því blóðþrýsting, einnig svitadrífandi, róandi, verkja- og krampastillandi, rík af  barkarsýrum, ísóvaleriansýru, salisilötum, kólín, aspargin og  sykrungum.  Vallhumall er blóðhreinsandi, græðandi, barkandi og æðavíkkandi,

Tröllasúra      (Rheum palamatum)   Rót Tröllasúru hefur einnig verið notuð víða um heim til lækninga um aldir. Inniheldur vitaminin A, B, C og P, einnig kalsíum kopar, joð, járn, magnesíum, mangan, fosföt, kísil, súlföt og zink.  Rótin er  styrkjandi, hreinsandi fyrir líffærin og hefur bætandi áhrif á gall. Hefur sérstaklega hreinsandi og græðandi  áhrif fyrir lifur. Losar einnig og hreinsar  eitrandi efni sem hafa sest í ristil. Tröllasúran stuðlar að bættri heilsu og vellíðan, betri jafnvægi  blóðflæðis og  meltingarfæra auk jafnvægis í iðraflóru.

Regnálms börku     (Ulmus fulva)    Regnálms börkur  inniheldur mikið kalsíum, magnesium og vítamínin A,B,C, K og P auk  þess hátt  innihald af græðandi slímefni, mjölvi, sykrur, fenól, gallic- og barkarsýrur.  Í berkinum er einnig í minna magni   kromium,  selenium,  zink, kísill, fosföt og járn.  Regnálmsbörkur er orkumikill en samt róandi, mýkjandi og sérstaklega græðandi, sótthreinsar og fjarlægir eiturefni. Hann er góður við innvortis sárum t.d. særindum í meltingarvegi, vélinda og maga. Styrkir líffæri og slímhúð t.d. maga og lungna.  Efnaþættir Regnálmsbarkar  jafna  einnig sýrustig  meltingafæra,  sem annars gæti  valdið  meltingaróþægindum.

Þari (Laminaria digitalis) inniheldur öll stein- og snefilefni sem uppleyst er í sjónum og nauðsynleg eru lífverum til vaxtar og viðhalds. Auk þess inniheldur þarinn önnur lífsnauðsynleg efnasambönd, s.s. vítamín, aminósýrur, prótein og önnur lífvirk efnasambönd. Meðal virkra efna má nefna slímefni, mannitól, fúkósterin, fúkósantin, sísantin og  ilmolíur (essential oils). Er nærandi, blóðhreinsandi, örvar skjaldkirtil og þar með öll efnaskifti líkamans. Gott við bólgum, vanvirkum skjaldkirtli og fyrir þá sem þjást af stöðugri þreytu og slappleika.

Heilagur Þistill     (Cnicus benedictus) Heilagur Þistill  hefur um aldir verið notaður til lækninga. Í rót  Þistilsins eru t.d.  efni sem stuðla að hreinsun slæmra efna úr blóðrás, jafnframt því að auka heilbrigði í öndunarfærum, eitlum, blóð- og þvagrás. Einnig er þessi efnasamsetning jákvæð fyrir losun óþarfa vökva, losar þá jafnframt út eiturefni, minnkar álag á lifur og bætir meltingu. Líklegt er að efnaþættir þessir komi í veg fyrir sýkingar í þvagrás, lifur og gallblöðru. Er bólgueyðandi og varnar gigtarbólgu, liðagigt og settaugabólgu. Í Heilögum Þistli eru vítamínin A,B,C, E, og P.  Töluvert magn er af  krómi, kóbalti, járni, magnesíum, fosfötum, kalí, kísil og zinki og einnig kalk, kopar, mangan og selen.  Líklega er þó jákvæðasta efnið Unulín og með mesta lækningaþáttinn og styrkir helstu líffæri  en sérstaklega lifur, milta og briskirtil.

Rauðsmári (Trifolium pratense) Rauðsmári inniheldur virk efni eins og salisýlsýru, sykrunga og sykrur auk kúmaríns og estrógenlíkra efna. Hann er græðandi, hressandi, þvagdrífandi og losar um slím t.d. í öndunarfærum. Hefur reynst vel við exemi og sóríasis. Hefur verið notaður gegn krabbameini, sérstaklega í brjóstum og eggjastokkum. Er notaður í smyrsli við húðkrabba.

Brunnperla (Nasturtium officinale). Brunnperla er rík af vítamínum, sérstaklega C,  joði, járni, fosfötum og öðrum steinefnum. Inniheldur mikið af nærandi olíuefnum.

 

Upplýsingar þessar eru til fróðleiks en eru ekki ætlaðar til lækninga. Hlustaðu á líkama þinn, leitaðu frekari upplýsinga og ræddu alltaf  við heilsufarsráðgjafann þinn  eða lækni fyr en seinna.

 Unnið fyrir Sunnan Vinda  Hveragerði     12/2004